Upprunalega Birkin taskan seld á rúman milljarð Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 11. júlí 2025 10:04 Ef vel er að gáð má sjá skammstöfun Jane Birkin, J. B., framan á töskunni. AP Hin upprunalega Birkin taska, framleidd af tískuhúsinu Hermés, var seld á 8,6 milljónir evra á uppboði í París á dögunum, sem samsvarar um 1,2 milljörðum íslenskra króna. Taskan er dýrasti fylgihluturinn sem seldur hefur verið á uppboði í Evrópu.
Líkt og tískuunnendum er kunnugt var taskan upprunalega hönnuð fyrir bresk-frönsku söng- og leikkonuna Jane Birkin. Hún fór frjálslega með töskuna, líkt og sjá má á myndinni að ofan, og hengdi til að mynda á hana límmiða. Skissaði uppkastið á ælupoka Reiknað var með að verð fyrir fyrirmyndina að Birkin töskunni yrði milljón evrur hið minnsta. Japanskur safnari bauð hæst, 8,6 milljónir evra og gerði töskuna því að næstdýrmætustu tískuvöru í heimi og þeirri dýrustu í Evrópu. Dýrasti tískugripur sem seldur hefur verið á uppboði eru hinir upprunalegu rúbínrauðu skór Dóróteu úr kvikmyndinni Galdrakarlinn í Oz. Þeir seldust á tæpa fjóra milljarða króna. Sagan af uppruna töskunnar er rakin í umfjöllun AP, en hún er sú að Birkin og Jean-Louis Dumas, þáverandi forstjóri Hermés, hafi kynnst þegar þau voru sessunautar í flugferð og Birkin sullað kaffi yfir hann fyrir slysni. Þá hafi þau byrjað að spjalla og hún tjáð honum að henni þætti engin handtaska henta þörfum hennar. Henni þætti flestar töskur á markaðnum helst til of litlar. Hann hafi þá byrjað að skissa upp uppkast að tösku aftan á ælupoka. Skissan hafi síðan orðið að alvöru tösku sem er nú óumdeilanlega einn þekktasti tískugripur sögunnar.
Tíska og hönnun Mest lesið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Fleiri fréttir Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira