Töpuðu 15-0 í síðasta leik og mættu ekki til leiks í gær Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. ágúst 2025 08:01 Sumarið hefur verið erfitt hjá ÍH. íh KV var dæmdur 3-0 sigur gegn ÍH í 3. deild karla í fótbolta í gær þar sem Hafnfirðingar mættu ekki til leiks.
ÍH er í tólfta og neðsta sæti 3. deildarinnar með einungis fjögur stig eftir nítján leiki. Liðið hefur fengið á sig 98 mörk og er fimmtán stigum frá öruggu sæti. Á miðvikudaginn tapaði ÍH 15-0 fyrir toppliði Magna á Grenivík. Í gær átti ÍH svo að spila við KV vestur í bæ en mætti ekki til leiks. Því var Vesturbæingum dæmdur 3-0 sigur. Á X-inu greindi Vesturbæingurinn Auðunn Örn Gylfason frá því að ÍH hefði í gærmorgun óskað eftir því að fresta leiknum þar sem þeir myndu hugsanlega ekki ná í lið. Auðunn sagði ÍH-ingum að hafa samband við KSÍ sem og þeir gerðu. Þar hafi þeim verið tjáð að ef Vesturbæingar væru tilbúnir að fresta leiknum yrði það gert. Stóra ÍH basl dagsins komið niður a blað and with a twist. Uff pic.twitter.com/fwJpXcy5qo— Auðunn Örn Gylfason (@AuddiGylfa) August 24, 2025 Auðunn segir það ótækt að það hafi verið undir KV komið hvort leiknum yrði frestað og fundinn annar leiktími, sem hefði verið þrautinni þyngri, eða fá dæmdan sigur. Hann kallar eftir skýrum reglum hjá KSÍ varðandi frestanir leikja svo mál sem þessi endurtaki sig ekki. Næsti leikur ÍH er gegn KFK í Fagralundi á föstudaginn kemur.
Íslenski boltinn Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fleiri fréttir „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann „Þetta lítur bara illa út“ Sjá meira