Ræningjar fjölmenntu með byssur og haka í skartgripabúð Samúel Karl Ólason skrifar 27. september 2025 11:06 Ræningjarnir voru fjölmargir og óreiðan mikil í versluninni. Að minnsta kosti einn ræningjanna var heppinn að vera ekki barinn í hausinn með haka annars ræningja. Lögreglan í San Ramon í Kaliforníu í Bandaríkjunum rannsakar nú mjög svo óhefðbundið rán í skartgripaverslun í bænum. Ránið var framið á mánudaginn en þá ruddust á þriðja tug grímuklæddra manna, sumir vopnaðir byssum, aðrir hökum og kylfum og nokkrir eingöngu með innkaupapoka, og létu greipar sópa um verslunina.
Fólkið braut öryggisgler í borðum verslunarinnar með hökunum og kylfunum á meðan aðrir hlupu um verslunina með poka og köstuðu skartgripum ofan í þá. Talið er að þjófarnir hafi stolið skartgripum að virðir rúmlega milljón dala. Samkvæmt AP fréttaveitunni, sem komið hefur höndum yfir myndband af ráninu, læstust dyr verslunarinnar þegar ránið hófst, vegna öryggisbúnaðar þar, og að minnsta kosti einn ræningjanna skaut á dyrnar til að komast aftur út. Myndefni sýnir fólkið hlaupa út úr versluninni og hoppa upp í fimm eða sex bíla og bruna á brott. Einhverjum bílanna hafði fólkið stolið fyrir ránið. Lögregluþjónum tókst að elta einhverja þjófanna úr lofti og handtaka þá. Héraðsmiðillinn Danville San Ramon sagði frá því í gær að þrír hafi verið ákærðir vegna ránsins. Einn þeirra er 31 árs, annar er 27 og sá þriðji nítján ára en allir eru karlmenn. Í tilkynningu frá lögreglunni í San Ramon segir ekkert um aðra sem að ráninu komu, annað en að unnið sé að því að bera kennsl á þá.
Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Sjá meira