Sif kláraði sögulegt ferðalag og öðlaðist dýpri skilning á vistkerfi fótboltans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. október 2025 09:02 Sif Atladóttir fagnar útskriftinni og áfanganum með dóttur sinni. @sifatla Íslenska knattspyrnukonan Sif Atladóttir er kannski hætt að spila fótbolta en fótboltinn verður áfram stór hluti af hennar lífi. Hún náði sér á dögunum í flotta gráðu hjá Knattspyrnusambandi Evrópu.
Sif varð þá ásamt Bjarna Þór Viðarssyni fyrsti Íslendingurinn til að útskrifast með UEFA MIP-prófið. Þau voru að klára en Alfreð Finnbogason er síðan að hefja sama nám. „Þvílíkt ferðalag sem við höfum verið á. Það er alltaf gefandi að ljúka einhverju sem maður hefur lagt hart að sér til að ná, en að gera það með þessu fólki var sannarlega einstakt,“ skrifaði Sif á samfélagsmiðla sína. Námið tók hana tvö ár og hún hefur trú á því að hópurinn sem hún útskrifaðist með muni jafnvel gera einhverja góða hluti saman í framtíðinni. „Að öðlast dýpri skilning á vistkerfi fótboltans, hlusta á þá bestu af þeim bestu í bransanum og aðlaga fræðilega hugsun að heimi fótboltans er aðeins toppurinn á ísjakanum af því sem við gerðum,“ skrifaði Sif. Hún segist vera virkilega stolt af því að vera hluti af MIP5. „Þó að útskriftinni sé nú lokið er þetta aðeins byrjunin. Við stefnum enn að því að verða næsta kynslóð leiðtoga og nú höfum við samfélagið okkar okkur við hlið,“ skrifaði Sif. Sif lék á sínum tíma 90 landsleiki fyrir Ísland og fór á fjögur Evrópumót með liðinu. Hún varð þrisvar Íslandsmeistari með Val áður en hún spilaði sem atvinnumaður í meira en áratug. View this post on Instagram A post shared by Sif Atladottir (@sifatla)
UEFA Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Mikil óvissa um þátttöku Alberts í mikilvægum landsleikjum Fótbolti „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Glódís og Þorsteinn sitja fyrir svörum Heitur HM draumur og mega ekki slaka á: „Getur allt farið til fjandans“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Mikil óvissa um þátttöku Alberts í mikilvægum landsleikjum Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Valgeir þurfti fjórar mínútur til að skora fyrsta mark sitt fyrir Viborg Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ „Flott frammistaða miðað við aðstæður“ „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum „Líf markmannsins að vera tilbúinn alltaf“ Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Ísak skoraði glæsimark í sigri Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Jón Dagur og félagar enn með fullt hús Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna Messi og Suárez í stuði Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Aflýstu leik vegna skutlukasts „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ „Þetta var alltaf mitt mark“ „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Sjá meira