Fuglaflensa greinist í refum Jón Ísak Ragnarsson skrifar 21. október 2025 16:08 Refir í náttúrunni. VÍSIR/VILHELM Skæð fuglaflensa af gerðinni H5n5 hefur greinst í þremur sýnum sem tekin voru úr veikum refum að undanförnu. Sama gerð skæðrar fuglainflúensu greindist í fuglum á Norðvesturlandi í september.
Frá þessu er greint á vef Matvælastofnunar en þar segir að undanfarið hafi fundist veikir refir, einn á Þingeyri og þrír við Keflavíkurflugvöll. „Skæða afbrigði fuglainflúensuveiru H5N5 greindist fyrst í spendýrum hérlendis síðastliðinn vetur í heimilisköttum, einum mink og einum ref, dreift víða um land. Þetta afbrigði hefur einnig greinst í villtum spendýrum í öðrum löndum á norðurhveli þar sem villtir fuglar hafa verið sýktir af sama afbrigði H5N5,“ segir í tilkynningu MAST. Fuglaeigendur eru hvattir til að gæta ítrustu smitvarna við umgengni á sínum fuglahópum, og jafnframt hvetur MAST almenning til að tilkynna um veika og dauða fugla, og villt spendýr sem það finnur. Veika villta fugla eða spendýr skuli þó ekki handleika nema með góðum sóttvörnum. „Veiðimenn eru hvattir til að sýna varkárni við veiðar og verkun villtra fugla. Ekki skal veiða fugla og nýta til matar sem haga sér óeðlilega eða eru sjáanlega veikir/slappir. Þó skal það tekið fram að fuglar sem virðast heilbrigðir geta líka verið smitaðir af fuglainflúensu. Matvælastofnun hefur gefið út leiðbeiningar fyrir veiðimenn um meðhöndlun allra veiddra fugla á tímum fuglainflúensu.“
Dýr Dýraheilbrigði Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum Innlent Fleiri fréttir „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Sjá meira