Sjaldgæf 30-20-10 þrenna í Síkinu í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. nóvember 2025 16:30 Maddie Sutton spilaði með Þórsurum síðustu ár en er nú kominn til Tindastóls. Vísir/Guðmundur Þórlaugarsson Bandaríska körfuboltakonan Maddie Sutton gerði allt sem hún gat á móti Keflavík í Síkinu á Sauðárkróki í Bónusdeild kvenna í körfubolta í gær. Það dugði ekki til sigurs en kom henni í fámennan hóp.
Sutton var með þrennu í leiknum og enga venjulega þrefalda tvennu. Sutton náði yfir 30, 20 og 10 í leiknum því hún var með 31 stig, 20 fráköst og 10 stoðsendingar. Aðeins þrjár aðrar hafa náð 30-20-10 þrefaldri tvennu í sögu kvennadeildarinnar. Hinar eru Kristen McCarthy, Jerica Watson og Helena Sverrisdóttir en sú síðastnefnda er eina íslenska körfuboltakonan sem hefur náð þessu. McCarthy náði þessu með Snæfelli í sigurleik á móti Keflavík í mars 2015 þar sem hún var með 40 stig, 25 fráköst og 10 stoðsendingar. Watson náði þessu með Grindavík í sigurleik á móti Keflavík í nóvember 2005 þar sem hún var með 32 stig, 28 fráköst og 10 stoðsendingar. Helena náði þessu með Haukum í sigurleik á móti Hamri í mars 2016 þar sem hún var með 30 stig, 20 fráköst og 15 stoðsendingar. Sutton var að ná sinni annarri þreföldu tvennu á þessari leiktíð því hún var einnig með þrennu í leik á móti Val (26 stig, 12 fráköst, 11 stoðsendingar). Grindvíkingurinn Abby Beeman er síðan eini annar leikmaður Bónusdeildar kvenna sem hefur náð þrefaldri tvennu í deildinni í vetur. Aðeins einn leikmaður hefur náð þessu í karladeildinni en það var Bandaríkjamaðurinn Sandy Anderson í leik með Þór Akureyri á móti Snæfelli í febrúar 1995 þegar hann var með 35 stig, 22 fráköst og 12 stoðsendingar.
Bónus-deild kvenna Tindastóll Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira