Sonur Dominique Wilkins með vindmyllutroðsluna í blóðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. nóvember 2025 16:00 Jacob Wilkins treður boltanum í körfuna með tilþrifum eins og pabbi sinn forðum. @ugabasketball Dominique Wilkins er ein mesta háloftastjarnan í sögu NBA-deildarinnar í körfubolta og nú er sonur hans farinn að nýta fjölskyldugenin í bandaríska háskólakörfuboltanum.
Jacob Wilkins er nítján ára sonur NBA-goðsagnarinnar Dominique Wilkins og valdi strákurinn að fara í Georgia-háskólann þar sem hann er á sínu fyrsta tímabili. Wilkins yngri sýndi það um helgina að hann hefur heldur betur erft íþróttahæfileika föður síns. Jacob bauð þá upp á vindmyllutroðslu í leik með Georgiu-háskólanum. Dominique Wilkins var þekktur fyrir háloftaleik sinn og svakalegar troðslur og ætti í raun að eiga einkaleyfi á vindmyllutroðslunni sem hann endurtók margoft á ógleymanlegan hátt. Sonur hans er óhræddur við að feta í hans fótspor og valdi meðal annars að spila í treyju 21 eins og faðir sinn. Troðslu stráksins má sjá hér fyrir neðan í samanburði við eina vindmyllutroðslu föður hans. Jacob Wilkins, eða Jake eins og hann er kallaður, skoraði 15 stig á 19 mínútum í 120-80 sigri Georgia Bulldogs á Morehead State Eagles. Bolabíturnir hafa unnið alla þrjá leiki sína til þessa á leiktíðinni. View this post on Instagram A post shared by CBS Sports College Basketball 🏀 (@cbssportscbb)
NBA Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Íslenski boltinn Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Breska ríkisstjórnin vill sjá refsingu frá FIFA Fótbolti Fleiri fréttir Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ Sjá meira