Ármenningar leggja árar ekki í bát og leita að nýjum Kana Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. nóvember 2025 13:20 Dibaji Walker hefur yfirgefið herbúðir Ármanns í Bónus deild karla. vísir / anton brink Ármann hefur losað bandaríska framherjann Dibaji Walker undan samningi við liðið í Bónus deild karla í körfubolta. Ármenningar ætla þó ekki að leggja árar í bát, þrátt fyrir afleitt gengi í upphafi tímabils, og eru í leit að nýjum Bandaríkjamanni.
Karl Höskuldur Guðlaugsson, stjórnarformaður körfuknattleiksdeildar Ármanns, staðfesti tíðindin í samtali við Vísi og sagði: „Við ætlum að finna nýjan leikmann, okkur fannst hann [Dibaji Walker] ekki alveg komast í takt við það sem við þurftum á að halda. Þannig að við erum að reyna að finna nýjan leikmann til að lífga aðeins upp á þetta“ sagði Karl og tók fram að það væri engin uppgjöf í Ármenningum. „Við erum bara rétt að byrja. Þetta er búin að vera brekka, sem er kannski eðlilegt, þegar við erum að spila í fyrsta skipti í úrvalsdeild [síðan 1981.] Þegar liðið var hér í gamla daga var ekki þetta úrvalsdeildarform, þannig að við erum að læra inn á þetta“ sagði Karl. Ármann mun halda hinum þremur erlendu leikmönnum liðsins, Hollendingnum Lagio Grantsaan, Svíanum Daniel Love og Slóvakanum Marek Dolezaj, ásamt öllum íslensku leikmönnunum auðvitað. Nýliðarnir hafa tapað öllum sex leikjum tímabilsins. Bandaríkjamaðurinn missti af fyrstu tveimur leikjunum en mætti svo með krafti og skoraði 34 stig í fyrsta leik. Síðan hefur hann ekki sýnt sömu snilli og aðeins skorað 10, 8 og 6 stig í síðustu þremur leikjum. Walker er nú laus allra mála og Ármann leitar að nýjum bandarískum leikmanni. Næsti leikur liðsins er gegn Íslandsmeisturum Stjörnunnar í Garðabænum á morgun klukkan 19:30.
Bónus-deild karla Ármann Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira