Framleiða keflvískan krimma sem gerist á hápunkti kalda stríðsins Magnús Jochum Pálsson skrifar 19. nóvember 2025 13:53 Lesli Bibb verður Captain Goodman í Top of the Rock sem Truenorth framleiðir. Hollywood-leikkonan Leslie Bibb mun leika aðalhlutverkið í glæpaþáttunum Top of the Rock sem gerast á hápunkti Kalda stríðsins og fjalla um dularfullt morð á bandarískum hermanni. Truenorth framleiðir þættina, Davíð Óskar Ólafsson leikstýrir og Jón Atli Jónasson og Óttar M. Norðfjörð skrifa handritið.
Hollywood-miðillinn Hollywood Reporter greinir frá. Leslie Bibb sem er þekktust fyrir leik sinn í Talladega Nights (2006), Iron Man (2008) og Law Abiding Citizen (2009) mun fylgja eftir góðri frammistöðu sinni í þriðju seríu af sjónvarpsþáttunum White Lotus (2025) með sex þátta glæpaseríunni Top of the Rock. Leslie Bibb vakti lukku í Hvíta lótusblóminu. Serían gerist árið 1983 á hápunkti kalda stríðsins og fylgjast áhorfendur með kapteininum Diane Goodman (Bibb) og herlögreglumanninum Söruh Ellis sem eru báðar staðsettar á Keflavíkurstöðinni. Þegar bandarískur hermaður finnst látinn við undarlegar kringumstæður við stöðina þurfa konurnar tvær að vinna með íslensku lögreglunni að rannsókn málsins. Fljótt kemur blekkingavefur í ljós. Íslenska framleiðslufyrirtækið Truenorth framleiðir þættina ásamt Mystery Productions og Vertu. Þættirnir eru hugarsmíði Davíðs Óskars Ólafssonar og Jóns Atla Jónassonar og er Ragnar Jónsson meðhöfundur. Davíð Óskar hefur komið að gerð ýmissa mynda og þátta. Davíð Óskar mun leikstýra þáttunum en hann hefur áður leikstýrt nokkrum þáttum í seríunum The Valhalla Murders (2020) og Trom (2022) og framleitt fjölda kvikmynda og sjónvarpsþættina Fanga (2017). Handrit þáttanna er skrifað af Jóni Atla Jónassyni og Óttari M. Norðfjörð. Jón Atli byrjaði í leikhúsinu en færði sig yfir í sjónvarps- og kvikmyndagerð og hefur skrifað Djúpið (2012), Falskan fugl (2013) og Austur (2015) sem hann leikstýrði einnig. Óttar hefur getið sér gott orð sem rithöfundur og skrifaði handritið að glæpaþáttunum Reykjavík 112 (2025), The Darkness (2024) og The Valhalla Murders (2019).
Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Keflavíkurflugvöllur Hollywood Mest lesið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Menning Fleiri fréttir Britney á stóra skjáinn Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira