Endurkoma kom Bayern aftur á sigurbraut Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. nóvember 2025 16:27 Michael Olise skoraði tvö fyrir Bayern. Vísir/Getty Eftir jafntefli í síðustu umferð vann Bayern München öruggan 5-2 sigur gegn Freiburg í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Bæjarar hafa ekki tapað einum einasta leik á tímabilinu og fyrir síðustu umferð hafði liðið unnið alla leiki sína frá því á HM félagsliða í sumar. Bayern þurfti hins vegar að sætta sig við 2-2 jafntefli gegn Union Berlin í síðustu umferð og framan af leik leit út fyrir fleiri töpuð stig hjá liðinu gegn Freiburg í dag. Gestirnir í Freiburg komust yfir á 12. mínútu áður en liðið tvöfaldaði forystuna fimm mínútum síðar. Heimamenn í Bayern voru hins vegar ekki á því að tapa fleiri stigum. Lennart Karl minnkaði muninn fyrir Bayern á 22. mínútu áður en Michael Olise jafnaði metin fyrir liðið í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Dayot Upamecano kom Bayern svo yfir snemma seinni hálfleiks og þeir Harry Kane og Nicolas Jackson bættu sínu markinu hvor við á 60. og 78. mínútu. Það var svo Olise sem innsiglaði sigurinn með öðru marki sínu og sjötta marki Bayern undir lok leiks. Niðurstaðan því 6-2 sigur Bayern sem trónir á toppi þýsku deildarinnar með 31 stig eftir 11 leiki, átta stigum meira en Bayer Leverkusen sem situr í öðru sæti. Freiburg situr hins vegar í tíunda sæti með 13 stig.
Þýski boltinn Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Fleiri fréttir „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Sjá meira