Innherji

Erum á upp­hafs­punkti ferðaþjónustu­hag­kerfis sem mun um­breyta Græn­landi

Hörður Ægisson skrifar
Peter Christiansen, starfandi forstjóri Nalik Ventures, og Hugh Short, forstjóri PT Capital frá Alaska sem er stór hluthafi í Keahótelum og var um tíma ráðandi hluthafi í Nova, kynntu metnaðarfulla áætlun um hvernig megi umbreyta ört vaxandi ferðaþjónustu í Grænlandi með innkomu alþjóðlegra fjárfesta.

„Við erum núna stödd á upphafspunkti ferðaþjónustuhagkerfis sem á eftir að umbreyta Grænlandi á komandi áratug,“ fullyrti forstjóri fjárfestingarfélagsins PT Capital á fjölmennri ráðstefnu um viðskiptatækifæri á Norðurslóðum, en nú þegar er búið að ráðast í verulegar fjárfestingar í flugvöllum sem gæti fjölgað flugfarþegum til landsins upp í meira en 400 þúsund. Til að mæta vaxandi eftirspurn ferðamanna er hins vegar þörf á hóteluppbyggingu fyrir mögulega jafnvirði hundrað milljarða íslenskra króna.

Tengdar fréttir

Telur norður­slóðir eiga eftir að verða eitt mikil­vægasta efna­hags­svæði veraldar

Vegna landfræðilegrar legu og öflugra innviða er Ísland í kjörstöðu til að nýta sér þau tækifæri sem við blasa í þróun efnahagsuppbyggingar á norðurslóðum, útskýrði Ólafur Ragnar Grímsson á ráðstefnu í London fyrr í þessum mánuði, sem hann telur að sé óðum að verða eitt af mikilvægustu efnahagssvæðum heimsins. Forstjóri Stoða brýndi fyrir erlendum fjárfestum mikilvægi þess að finna „réttan samstarfsaðila“ þegar fjárfest væri á Íslandi og nefndi að vegna sterkrar stöðu íslenska þjóðarbúsins þá ætti gjaldmiðillinn ekki að vera vandamál.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×