„Ég er alveg jafn ringlaður og í áfalli og þið, og allur heimurinn“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. desember 2025 06:33 Chris Paul ræðir málin á bekknum við stórstjörnurnar Kawhi Leonard og James Harden í leik með LA Clippers í vetur. Getty/Ezra Shaw Stórsjörnur LA Clippers, James Harden og Kawhi Leonard, voru „í áfalli“ þegar þær komust að því á miðvikudagsmorgun að Chris Paul væri ekki lengur liðsfélagi þeirra.
Los Angeles Clippers sagði upp samningi Chris Paul á miðju tímabili og hann er því án félags á síðasta tímabilinu á ferlinum. Harden og Leonard trúðu varla sínum eigin augum þegar þau sáu fréttirnar í símum sínum. „Ég er alveg jafn ringlaður og í áfalli og þið, og allur heimurinn,“ sagði Harden á miðvikudagskvöld eftir að Clippers sigraði Hawks 115-92 og batt enda á fimm leikja taphrinu. „Þetta kom mér svo sannarlega á óvart. En þetta snýst ekki bara um Chris, það er margt sem við vorum að glíma við. En þetta er ekki á mínu valdi. Ég verð að einbeita mér að því sem ég þarf að einbeita mér að og því sem ég get stjórnað. Ég geri ráð fyrir að stjórnin hafi talið þetta vera bestu ákvörðunina fyrir félagið,“ sagði Harden. “I’m just as shocked and confused as you guys are.”-James Harden on the Clippers sending Chris Paul home pic.twitter.com/nrY8Tz7oxb— Artoftheleague 🖌️ (@artoftheleague) December 4, 2025 Þetta var áfall fyrir mig Leonard sagðist næstum því hafa þurft að lesa fréttirnar aftur. „Þetta var áfall fyrir mig,“ sagði Leonard. „Ég geri ráð fyrir að þeir hafi átt samtal og stjórnin hafi tekið ákvörðun,“ sagði Leonard. Heimildarmenn sögðu Shams Charania hjá ESPN að Paul hefði ekki talað við Ty Lue, þjálfara Clippers, í nokkrar vikur áður en leikstjórnandinn reyndi var skyndilega rekinn frá liðinu. Paul og leiðtogastíll hans stangaðist á við Lue og Clippers, að sögn heimildarmanna sem sögðu Charania að tólffaldi stjörnuleikmaðurinn hefði verið ófeiminn við að krefjast ábyrgðar af stjórnendum, þjálfurum og leikmönnum. Clippers taldi að stíll Pauls væri orðinn truflandi, sögðu heimildarmenn Charania. Ég ber mikla virðingu fyrir honum Lue var spurður hvort brottför Pauls hjálpaði Clippers. „Ég held ekki endilega að það hafi hjálpað liðinu okkar,“ sagði Lue fyrir leikinn á miðvikudag. „Ég meina, ég held að ástæðan fyrir því að við erum 5-16 sé ekki vegna frammistöðu CP. Ég held bara að þetta hafi ekki passað við það sem hann var að leita að. Vil ég sjá CP fara á þennan hátt? Nei, ég ber mikla virðingu fyrir honum. Hann hefur verið vinur minn í gegnum árin og maður vill ekki sjá goðsögn fara á þennan hátt,“ sagði Lue. „Ég er nokkuð viss um að hann muni finna eitthvað því hann er frábær leikmaður. [En] ég vildi ekki sjá þetta enda svona,“ sagði Lue Ég tek ekki afstöðu Paul, einn af bestu leikmönnum í sögu Clippers, mun hætta í lok þessa tímabils, hans 21. í NBA, sögðu heimildarmenn Charania. „Ég tek ekki afstöðu [í þessu],“ sagði Lue. „Mér líkar þetta ekki. Þetta gekk bara ekki upp eins og við héldum. Mér líkar þetta ekki fyrir CP. Þetta passaði bara ekki og við skildum það. Þetta var ákvörðun [félagsins], þeir tóku valið og nú verðum við að sjá hvað við gerum,“ sagði Lue.
NBA Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Körfubolti Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Körfubolti Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Fótbolti Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira