Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. desember 2025 13:39 Sarah Dzafce sagðist fyrst hafa verið að nudda á sér gagnaugun vegna höfuðverks en gekkst síðan við hegðun sinni og baðst afsökunar. Sarah Dzafce sem var krýnd Ungfrú Finnland í september hefur verið svipt krúnunni í kjölfar rasískrar hegðunar þar sem hún gerði sig skáeygða til að líkja eftir Kínverjum.
Finnska ríkisútvarpið Yle greinir frá þessum fregnum. Sarah Dzafce var krýnd Ungfrú Finnland 6. september síðastliðinn og keppti í Ungfrú heimi í lok nóvember. Dzafce sem er 22 ára, býr í Kuopio og er af blönduðum bakgrunni, á kósovskan föður og finnska móður. Myndin umrædda. Eitthvað hefur frægðin stigið henni til höfuðs, eða hún afhjúpað sinn innri mann, því hún birti nýverið á samfélagsmiðlinum Jodel mynd af sér að herma á rasískan máta eftir Kínverjum. Á myndinni gerir Dzafce sig skáeygða með fingrunum og stendur þar fyrir neðan á finnsku „kiinalaisenkaa syömäs“ sem mætti þýða sem „borðað með Kínverja“. Þótti ljóst að Dzafce væri þar að hæðast að asísku fólki en hún hafnaði því upphaflega. Sagðist hún hafa verið að nudda á sér gagnaugun og teygja á augunum vegna „mikils höfuðverks“. Ungfrú Finnland gaf frá sér yfirlýsingu á miðvikudag og sagðist hvorki samþykkja rasisma né annars konar niðrandi hegðun. Í dag var síðan haldinn blaðamannafundur þar sem Dzafce var svipt titlinum og Tara Lehtonen, sem lenti í öðru sæti í keppninni í september, tók við krúnunni og titlinum Ungfrú Finnland. Dzafce bað alla þá sem hún særði afsökunar.
Fegurðarsamkeppnir Finnland Kína Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Sjá meira