Fegurðarsamkeppnir
Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna „Fyrir rúmlega ári síðan greindist ég með sjaldgæfan sjálfsofnæmissjúkdóm sem hefur stundum gert daglegt líf og vinnu erfiðari. Þrátt fyrir það var ákveðinn léttir að fá loksins skýringu á því sem ég hafði verið að ganga í gegnum. Það gaf mér tækifæri til að skilja líkamann minn betur og læra að takast á við einkennin,“ segir Elinborg Jóhanna Hrannarsdóttir, sem keppir í Ungfrú Ísland 2026. Lífið 11.4.2026 08:01
Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi „Það sem hefur mótað mig mest er að hafa veikst alvarlega fyrir þremur árum. Þá þurfti ég í raun að hefja lífið mitt upp á nýtt og læra að lifa lífinu sem ég hélt að ég hefði þurft að kveðja, Sú reynsla kenndi mér að meta litlu hlutina og vera þakklát fyrir hvern dag. Ég lít á það sem annað tækifæri sem Guð gaf mér og þess vegna leyfi ég ekki gagnrýni annarra að stoppa mig frá því að elta draumana mína,“ segir Sólveig Bech sem keppir í Ungfrú Ísland 2026. Lífið 10.4.2026 07:01
Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest „Ég er svo þakklát fyrir allt sem ég á og allt sem hefur mætt mér á lífsleiðinni. En það var mikil gæfa að fá höfnun sem lét mig leggja harðar af mér frekar en að gefast upp þegar ég komst ekki inn í draumaskólann og missti ljósið mitt,“ segir Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir sem keppir í Ungfrú Ísland 2026. Lífið 9.4.2026 09:02
„Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ „Ég hef alltaf þurft að takast á við fordóma gagnvart húðlitnum mínum. Oftast öráreitni, en líka rasískar hótanir á netinu og í persónu. Þetta hafði gríðarleg áhrif á líf mitt, sjálfstraustið mitt og vellíðan. Ég vissi samt snemma að eina leiðin sem ég get barist gegn kynþáttafordóma er að nota mína rödd og gera eitthvað gott úr því,“ segir Klara Wanjiru Sindradóttir sem keppir í Ungfrú Ísland 2026. Lífið 1.4.2026 09:01
Enn ólgar Ungfrú Ísland: „Ekkert til sem heitir ósanngjarn samningur ef þú skrifar undir hann“ Fegurðardrottningin Kristín Anna Jónasdóttir, sem bar titilinn Miss Cosmo Iceland 2025, hefur sagt skilið við samtökin Ungfrú Ísland og segir farir sínar ekki sléttar. Manúela Ósk Harðardóttir, framkvæmdastjóri keppninnar, segir yfirlýsingu Kristínar ekki eiga við rök að styðjast, hún hafi fengið töluverðan stuðning og glöð gengist undir samning við keppnina. Lífið 27.3.2026 12:07
Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Keppendur í fegurðarsamkeppninni Ungfrú Ísland árið 2026 hafa verið tilkynntir en alls keppa tuttugu stúlkur um titilinn. Lífið 2.2.2026 15:32
Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Söngvakeppnisstjarnan Sigga Ózk tekur óvænta beygju og hyggst taka þátt í fegurðarsamkeppninni Ungrú Íslandi. Lífið 1.2.2026 08:46
Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Ósætti ríkir milli fegurðardrottningarinnar Helenu Hafþórsdóttur O'Connor og forsvarsmanna Ungfrúar Íslands. Þar stendur orð gegn orði um það hver tók ákvörðun um að skrá Helenu úr keppni í Ungfrú alheimi í nóvember vegna veikinda hennar. En það sem meira er þá lenti Helena í keimlíkum hremmingum og Manúela Ósk Harðardóttir, framkvæmdastjóri Ungfrúar Íslands, lenti í fyrir 22 árum síðan. Lífið 22.12.2025 09:02
Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Aðstandendur samtakanna Miss Universe Iceland segja Helenu Hafþórsdóttur O’Connor, sem afsalaði sér krúnu Ungfrúar Íslands og rauf tengsl við samtökin í gær, fara með rangfærslur. Hún hafi sjálf óskað ítrekað eftir því að vera dregin úr keppni í Ungfrú heimi í Taílandi. Lífið 16.12.2025 15:08
Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna Petteri Orpo, forsætisráðherra Finnlands, er ekki hlátur í huga yfir stuðningsyfirlýsingum samherja hans í ríkisstjórn við fegurðardrottningu á samfélagsmiðlum. Forsætisráðherrann segir sanna Finna sýna af sér barnaskap með því að birta af sér myndir þar sem þeir gera sig „skáeygða“. Lífið 15.12.2025 11:54
Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Finnsk fegurðardrottning, sem var svipt titlinum Ungfrú Finnland í gær vegna rasískrar hegðunar, hefur fengið stuðning frá tveimur finnskum stjórnmálamönnum úr hægriflokknum Sönnum Finnum. Annar birti mynd af sér að gera sig skáeygðan og hinn lýsti því yfir að honum þætti miskunnar- og húmorslaust að svipta hana titlinum. Lífið 12.12.2025 11:37
Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Sarah Dzafce sem var krýnd Ungfrú Finnland í september hefur verið svipt krúnunni í kjölfar rasískrar hegðunar þar sem hún gerði sig skáeygða til að líkja eftir Kínverjum. Lífið 11.12.2025 13:39
Var úthúðuð af skipuleggjanda en sigraði í Ungfrú alheimi Hin mexíkóska Fátima Bosch Fernández, ungfrú Mexíkó, sigraði í nótt fegurðarkeppnina Ungfrú alheimur, Miss Universe 2025, sem fram fór í Taílandi. Í aðdraganda keppninnar vakti það sérstaklega athygli þegar taílenskur framkvæmdastjóri keppninnar úthúðaði Bosch Fernández og sigaði gæslunni á hana. Lífið 21.11.2025 07:40
Óhuggulegt fall fegurðardrottningar Ungfrú Jamaíka fékk harkalegan skell þegar hún datt af sviðinu í undankeppni Ungfrúar alheims í Taílandi í gær. Hún var borin á sjúkrabörum af vettvangi og flutt á sjúkrahús. Lífið 20.11.2025 14:29
Yfirgáfu salinn þegar gæslunni var sigað á „heimska“ ungfrú Mexíkó Allt leikur á reiðiskjálfi í herbúðum fegurðasamkeppninnar Ungfrú alheimur eftir að framkvæmdastjóri keppninar kallaði ungfrú Mexíkó heimska á viðburði í Taílandi. Fjöldi keppenda yfirgaf í kjölfarið salinn, þar á meðal ríkjandi Ungfrú alheimur. Lífið 6.11.2025 11:11
Fyrsta Ungfrú Grænland í rúm þrjátíu ár Hin 21 árs gamla Vicky Rebella Riis var krýnd Ungfrú Grænland 2025 þann 14. september síðastliðinn í Sirkussalnum í Kaupmannahöfn. Þetta er í fyrsta skipti síðan árið 1992 sem fulltrúi Grænlands er krýndur í fegurðarsamkeppni á alþjóðavettvangi. Lífið 23.9.2025 14:18
Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, kynjafræðingur og trans aðgerðarsinni, svarar ósáttum föður fegurðardrottningar sem blöskraði gjörningur Kvenréttindafélagsins í Gleðigöngunni. Hún segir að ef skipuleggjendur göngunnar bæðust afsökunar hvert sinn sem eitthvað færi fyrir brjóstið á fólki þá myndu þeir varla gera mikið annað. Fegurðarsamkeppnir séu ekki hafðar yfir gagnrýni. Innlent 13.8.2025 19:03
Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Faðir fyrrverandi sigurvegara Miss Universe Iceland krefst þess að forsvarsmenn Gleðigöngunnar, sem fór fram um helgina, biðjist afsökunar á gjörningi sem hann telur að hafi niðurlægt keppendur fegurðarsamkeppna. Þar talar hann um eins konar lukkudýr sem líktist nauti og var merkt „Miss young Iceland“ og var sjáanlegt í Gleðigöngunni. Innlent 12.8.2025 18:41
Horfði aftur á keppnina þegar hún kom heim Helena Hafþórsdóttir O'Connor var krýnd Ungfrú Ísland í Gamla bíói í gærkvöldi. Hún var að taka þátt í annað skiptið og segir tilfinninguna æðislega. Lífið 4.4.2025 10:36
Helena krýnd Ungfrú Ísland Helena Hafþórsdóttir O´Connor var í kvöld krýnd Ungfrú Ísland. Helena var Ungfrú Viðey og hlaut einnig titilinn Marc Inbane stúlkan og Mac stúlkan. Helena er tuttugu ára gömul og vinnur sem vaktstjóri á Te og kaffi auk þess að stunda sálfræði í háskóla. Helena mun keppa fyrir Íslands hönd í Miss Universe sem fram fer í Taílandi við lok árs. Lífið 3.4.2025 22:41
Fimm konur í dómnefnd Ungfrú Ísland Þann 3. apríl næstkomandi keppast tuttugu stúlkur á aldrinum 18 til 36 ára um titilinn Ungfrú Ísland 2025. Keppnin fer fram í Gamla Bíói og er dómnefnd skipuð fimm konum með ólíkan bakgrunn. Lífið 12.3.2025 14:00