Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Aron Guðmundsson skrifar 21. desember 2025 19:09 Arnór Ingvi Traustason er mættur til KR og í Bestu deildina Norrköping Þaulreyndi atvinnu- og landsliðsmaðurinn í fótbolta, Arnór Ingvi Traustason er orðinn leikmaður KR og skrifar undir samning í Vesturbænum út tímabilið 2028. Þetta staðfestir félagið í tilkynningu á samfélagsmiðlum.
Hinn 32 ára gamli Arnór Ingvi er uppalinn í Keflavík en hefur spilað úti í atvinnumennsku síðustu 11 ár. Lengst af spilaði hann í Svíþjóð með liðum á borð við Norrköping og Malmö en auk þess lék hann í Grikklandi, Austurríki, Bandaríkjunum og Noregi. Þá á Arnór Ingvi einnig að baki 67 A landsleiki fyrir Íslands hönd. Þar af voru þrír landsleikir á stórmóti. Alls hefur Arnór skorað sex mörk á sínum landsliðsferli. Ferilskrá Arnórs talar sínu máli þegar talað verður um það hvers konar leikmann úr efstu hillu KR er að fá í sínar raðir. Í tvígang hefur hann orðið sænskur meistari. Fyrst með Norrköping árið 2015 en síðan Malmö árið 2020. Þá var hann hluti af liði AEK sem varð grískur meistari árið 2018. Alls á Arnór Ingvi að baki 220 leiki í efstu deild Svíþjóðar samkvæmt vefsíðunni Transfermarkt og hefur í þeim leikjum skorað 47 mörk og gefið 40 stoðsendingar. Þar að auki býr hann að mikilli reynslu úr Evrópuboltanum. Félagsskipti Arnórs Ingva frá Norrköping til KR marka endurkomu hans í íslenska boltann en síðast spilaði Arnór í efstu deild hér á landi tímabilið 2013 með liði Keflavíkur. Alls á Arnór að baki 52 leiki í efstu deild hér á landi fyrir lið Keflavíkur og hefur í þeim leikjum skorað tíu mörk.
Íslenski boltinn Besta deild karla KR Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Fleiri fréttir Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Sjá meira