Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. desember 2025 15:47 Vinícius Juníor hefur ekki átt sjö dagana sæla. Berengui/vi/DeFodi Images via Getty Images Vinícius Juníor hefur átt erfitt uppdráttar síðan hann endaði í öðru sæti í kjörinu um Gullboltann á síðasta ári. Stuðningsmenn Real Madrid virðist vera að gefast upp á honum og félagið hefur lokað á samningaviðræður við hann.
Vinícius hefur ekki skorað í síðustu fjórtán leikjum fyrir Real og í heildina hefur hann aðeins skorað fimm mörk á tímabilinu. Sem jafngildir jafngildir einu marki á hverjum 356 mínútum, en svo slök tölfræði hefur ekki sést hjá Vinícius síðan á fyrstu tveimur tímabilunum hjá Real Madrid eftir að hann gekk til liðs við félagið átján ára gamall. Síðan spænski miðjumaðurinn Rodri vann Gullboltann hefur Vinícius aðeins skorað 19 mörk í 67 leikjum. Fjögur þeirra marka voru skoruð í fyrstu tveimur leikjunum eftir verðlaunaafhendinguna sem Vinícius mætti ekki á. Þá héldu stuðningsmenn að hann ætlaði að svara vel fyrir sig en raunin hefur orðið önnur. Svo slæm þykir spilamennska hans upp á síðkastið að stuðningsmenn Real Madrid bauluðu hástöfum þegar hann var tekinn af velli í 2-0 sigri gegn Sevilla á dögunum. Rúmlega ári eftir að sömu stuðningsmenn klöppuðu fyrir hverri gabbhreyfingu sem hann gerði. Vinícius svaraði fyrir sig með því að breyta forsíðumynd sinni á Instagram, úr mynd af honum í Real Madrid treyju og yfir í mynd af honum í landsliðstreyjunni. Samningur hans við Real Madrid gildir út næsta tímabil, til sumarsins 2027. Viðræður um framlengingu hafa verið í gangi lengi en Vinícius fer fram á sömu laun og Kylian Mbappé, sem hefur slegið skugga yfir Vinícius og skorað jafnmikið á þessu ári og Cristiano Ronaldo gerði á sínum tíma. Miðað við frammistöðu síðustu mánuði eru forráðamenn félagsins hins vegar ekki sannfærðir. Samningaviðræðurnar hafa því siglt í strand en verða teknar upp að nýju eftir HM 2026, sem er sagður síðasti séns fyrir Vinícius að sanna að hann eigi skilið sömu laun og Mbappé.
Spænski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira