Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sporthúsið 6. janúar 2026 14:22 Technogym Biostrength er algjör bylting í styrktarþjálfun og gerir notendum kleift að ná allt að 30% meiri árangri en í hefðbundinni styrktarþjálfun. Í upphafi árs kynnti Sporthúsið til sögunnar nýja tækjalínu frá Technogym sem ber heitið Biostrength og er algjör bylting í styrktarþjálfun. Í stað hefðbundinna lóða notast tækin við tölvustýrða, rafseguldrifna mótstöðu sem aðlagar sig sjálfkrafa að líkamsstöðu, getu og markmiðum hvers notanda. „
Þetta er eitthvað sem allir verða að prófa,“ segir Þröstur Jón Sigurðsson, eigandi Sporthússins, en tæknin á bak við tækin var upphaflega þróuð fyrir NASA til að sporna við vöðvarýrnun í geimnum og gerir notendum kleift að ná allt að 30% meiri árangri en í hefðbundinni styrktarþjálfun. Klippa: Technogym Biostrength „Með aðstoð gervigreindar, sérsniðinna æfinga og ótrúlegrar nákvæmni aðlagar hvert tæki sig að styrk, getu og markmiðum hvers og eins án þess að notendur þurfi að fikta við pinna, stilla lóðaplötur eða taka sér óþarfa pásur á æfingum.“ Tæki sem skynjar þreytu Biostrength tækin byggja á Biodrive tækni. Þau skrá sjálfkrafa hreyfigetu og hámarksstyrk iðkandans á fyrstu æfingu og stilla mótstöðu og æfingahraða í samræmi við markmið, hvort sem það er að byggja upp styrk eða vöðvamassa. „Ef markmiðið þitt er að hámarka styrk, þá færðu mótstöðu sem líkist því að lyfta í vatni. Ef þú vilt byggja upp sprengikraft þá minnkar tækið skriðþunga í lok hreyfingar. Ef þú ert byrjandi og vilt lágmarka harðsperrur, þá minnkar mótstaðan á niðurleið.“ Með snjallforriti og gervigreind fylgist tækið með endurtekningum, tempói og hvíldum og aðlagar sig að þér í rauntíma. „Tækið skynjar meira að segja hvenær þú ert að þreytast og minnkar mótstöðuna aðeins til að tryggja öryggi," bætir Þröstur við. Framtíðin í styrktarþjálfun Auk þess að aðstoða við sjálfa æfinguna heldur tækið utan um allt þjálfunarferlið. „Æfingar eru skráðar sjálfkrafa í Technogym appið, þar sem notendur sjá framfarir sínar, fá tillögur að æfingum og geta jafnvel samstillt mælingar úr Technogym Checkup sem er háþróað mælitæki sem mælir allt frá styrk og þoli til liðleika og hugrænnar snerpu. Við erum í raun að bjóða fólki upp á tæknibyltingu í líkamsrækt sem hingað til hefur aðeins verið í boði fyrir atvinnuíþróttafólk," segir Þröstur. Klippa: Technogym Biostrength er algjör bylting í styrktarþjálfun. Hann segir Biostrength tækin henta nánast öllum, allt frá byrjendum sem vilja örugga og markvissa uppbyggingu, til atvinnumanna sem vilja ná hámarksárangri. „Þetta er framtíðin í styrktarþjálfun og hún byrjar í Sporthúsinu.“ Þú verður að prófa strax í dag Technogym Biostrength tækin eru aðgengileg í báðum stöðvum Sporthússins, í Kópavogi og í Reykjanesbæ. „Ég veit að þetta hljómar eins og eitthvað úr framtíðinni en við erum ekki að lýsa einhverri draumsýn, þetta eru tæki sem þú getur prófað hjá okkur strax í dag. Munurinn á æfingu í Biostrength tæki og hefðbundnu lyftingatæki er ótrúlegur. Þú verður bara að prófa,“ segir Þröstur og brosir breitt. Sporthúsið hóf rekstur árið 2002 og hefur alla tíð lagt áherslu á að vera í fararbroddi þegar kemur að nýrri tækni og bjóða upp á framsæknar lausnir sem skila raunverulegu virði fyrir viðskiptavini sína. Í sumar kom Sporthúsið upp glæsilegustu aðstöðu landsins fyrir fjölmarga aðdáendur Padel íþróttarinnar sem hefur sannarlega slegið í gegn. Með tilkomu Biostrength frá Technogym tekur Sporthúsið annað stórt skref og styrkir sig í sessi sem leiðandi líkamsræktarstöð á Íslandi.
Heilsa Líkamsræktarstöðvar Mest lesið Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Lífið Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Lífið „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Tónlist „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Lífið Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Lífið Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Lífið Stjörnufans í eins árs afmæli Lífið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið „Stundum verður maður að segja fokk it“ Tónlist Fleiri fréttir Celebrating George Michael kemur til Íslands Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Sjá meira