Víkingar fundu nýtt nafn á íþróttasvæði sitt í Safamýri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. janúar 2026 07:45 Víkingar eiga nú heimili í Víkinni í Fossvoginum og í Virkinu í Safamýri. Knattspyrnufélagið Víkingur Víkingar tóku við íþróttamannvirkjunum í Safamýri þegar Framarar fluttu upp í Úlfarsárdal. Nú hafa Víkingar fundið nýtt nafn á íþróttasvæðið.
Í árlegu áramótakaffi Víkings þann 29. desember fór fram nafngift á svæði Víkings í Safamýri og þeir hafa nú opinberað nýja nafnið á miðlum félagsins. Víkingar hafa verið með aðstöðu í Fossvoginum síðan 1991 og fékk sá staður nafnið Víkin. Aðalstjórn Víkings samþykkti í nóvember 2025 að skipa sérstaka nafnanefnd sem myndi kalla eftir og fara yfir tillögur um nýtt nafn á íþróttasvæði Víkings við Safamýri. Nafnanefndin fór ítarlega yfir allar tillögur sem bárust, fór yfir kosti og galla hverrar tillögu. Nefndinni var falið að skila tillögum til aðalstjórnar fyrir jól. Á miðlum Víkings kemur fram að aðeins eitt nafn úr tillögunum hafi fengið grænt ljós. Íþróttasvæði Víkings í Safamýri heitir því hér eftir Virkið. „Nafnið Virkið vísar á táknrænan og sterkan hátt í sjálfsmynd Víkinga. Það kallast á við Víkingahefðina, þar sem vikið var staður stuðnings, verndar og samheldni. Félagsheimilið gegnir einmitt slíkum hlutverkum fyrir félagið. Það er samkomustaður þar sem leikmenn, foreldrar, stuðningsfólk og samfélagið allt byggja upp liðsheild, rækta tengsl og styrkja innviði félagsins,“ sagði í rökstuðningi á miðlum Víkings. „Virkið er einfalt, auðheyrt og minnisstætt nafn sem fellur vel að vörumerki Víkinga.“ Nýja slagorðið er: „Virkið - náttúrulegt heimili Víkinga.“
Víkingur Reykjavík Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía og stöllur í góðum gír Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun „Sóknarleikurinn vel smurður“ Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Sjá meira