Halda í opinbera heimsókn til Eyja Atli Ísleifsson skrifar 8. janúar 2026 13:15 Halla Tómasdóttir forseti Íslands. Vísir/Vilhelm Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Björn Skúlason, eiginmaður forseta, munu halda í opinbera heimsókn til Vestmannaeyja dagana í dag og á morgun.
Í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands segir að þar taki bæjarstjórn á móti forsetahjónum og kynni þeim mannlífið, helstu stofnanir og atvinnulíf í Eyjum. „Vestmannaeyjar eru ein mikilvægasta verstöð landsins og nafntogaðar fyrir náttúrufegurð og blómlegt samfélag. Forsetahjón munu dvelja í Vestmannaeyjabæ á Heimaey. Dagskráin hefst síðdegis fimmtudaginn 8. janúar. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri tekur á móti forsetahjónum á flugvellinum, ásamt Páli Magnússyni forseta bæjarstjórnar, Njáli Ragnarssyni formanni bæjarráðs og Drífu Gunnarsdóttur , framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs bæjarins. Þaðan verður ekið í Sagnaheima þar sem verður opið hús frá kl. 16.30. Bæjarbúum gefst þar kostur á að hitta forsetahjónin og taka þátt í hátíðlegri dagskrá þar sem boðið verður upp á tónlistaratriði, auk þess sem forseti og bæjarstjóri flytja ávörp. Fyrir hádegi á öðrum degi heimsóknarinnar eru leikskólinn Kirkjugerði, Grunnskóli Vestmanneyja og Framhaldsskóli Vestmannaeyja heimsóttir. Einnig kynna forsetahjón sér starfsemina í vinnu- og hæfingarstöðinni Heimaey, Safnahúsinu og Bókasafni Vestmannaeyja. Í hádeginu sitja forsetahjón fund með bæjarstjórninni í Ráðhúsinu og hitta starfsfólk þar. Síðdegis fara forsetahjón m.a. í heimsóknir í Ísfélag Vestmannaeyja, Þekkingarsetur Vestmannaeyja og Laxey sem er að byggja upp landeldi í Eyjum. Þau hafa einnig viðkomu í Týsheimilinu á Hamarsvegi þar sem haldið verður árlegt Þrettándakaffi fyrir sjálfboðaliða Þrettándagleðinnar. Dagskánni lýkur á þátttöku forsetahjóna í Þrettándagleðinni á malarvelli ÍBV,“ segir í tilkynningunni.
Forseti Íslands Halla Tómasdóttir Vestmannaeyjar Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira