KA fær Dag aftur heim Sindri Sverrisson skrifar 16. janúar 2026 12:15 Dagur Gautason er mættur aftur í KA-heimilið. KA KA hefur borist gríðarlegur liðsstyrkur fyrir seinni hluta keppnistímabilsins í handbolta því hornamaðurinn Dagur Gautason er snúinn heim úr atvinnumennsku.
Dagur, sem er 25 ára gamall, er einn besti vinstri hornamaður landsins og er til að mynda í 35 manna hópnum sem Snorri Steinn Guðjónsson getur pikkað úr á meðan á Evrópumótinu stendur. Hann skrifaði undir samning til eins og hálfs árs við KA. Dagur steig sín fyrstu skref í meistaraflokki KA tímabilið 2017-2018 er KA hóf aftur að leika undir eigin merki. Hann var strax í lykilhlutverki í liðinu sem tryggði sér sæti í deild þeirra bestu og kemur inn í spennandi tímabil hjá KA-mönnum sem til að mynda eru komnir inn í undanúrslitin í bikarkeppninni og sitja í 5. sæti Olís-deildarinnar. Dagur kemur til KA frá norska félaginu Arendal en þangað fór hann haustið 2023. Hann var valinn í úrvalslið norsku úrvalsdeildarinnar tímabilið 2023-24. Seinni hluta síðustu leiktíðar var Dagur hjá franska stórliðinu Montpellier sem varð bikarmeistari og komst í úrslit í Evrópudeildinni. Í tilkynningu KA er því fagnað mjög að félagið hafi endurheimt Dag. Þar segir: „Ekki nóg með að fá einn besta vinstri hornamann landsins aftur heim að þá er Dagur grjótharður KA-maður sem gefur sig allan fyrir félagið rétt eins og öll hans fjölskylda. Bræður Dags eru báðir í eldlínunni með KA en Logi leikur einnig í vinstra horni í handboltanum á meðan Kári er öflugur bakvörður í fótboltanum. Þá er systirin hún Ásdís efnileg í fótboltanum hjá Þór/KA auk þess sem foreldrarnir þau Gauti og Hafdís eru ómissandi í starfinu í kringum KA.“
KA Olís-deild karla Handbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira