Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. janúar 2026 18:13 Telma Tómasson les kvöldfréttir í kvöld. Ráðamenn í Evrópu funda stíft vegna stöðunnar sem upp er komin í álfunni eftir að Bandaríkjaforseti boðaði að hann myndi refsa með tollum sumum af þeim Evrópuríkjum sem setja sig upp á móti Grænlandsásælni hans.
Við förum yfir það nýjasta í þróuninni og ræðum við Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, um öryggismálin en hann var fyrir nokkrum árum formaður sérstakrar Grænlandsnefndar. Þá tökum við púlsinn á fólkinu í landinu og fáum að heyra hvernig því líður vegna þróunarinnar á Grænlandi. Um fjórðung allra heimsókna á bráðamóttöku má rekja til áfengisneyslu. Í fréttatímanum verður rætt um falinn vanda í samfélaginu sem er áfengisneysla eldri borgara en starfsmenn heimaþjónustu og hjúkrunarheimila óska vikulega eftir aðstoð vegna drykkju skjólstæðinga. Vinstri græn og Vor til vinstri tilkynntu í gær að flokkarnir hygðu á sameiginlegt framboð í Reykjavík en ekki allir lögðu sama skilning í það sem um var samið. Við ætlum að komast til botns í málinu í kvöldfréttum. Loðnuvertíðin er hafin og fyrsta loðnan veiddist í morgun út af Austfjörðum. Kristján Már rýnir í loðnuleitina í tímanum. Við verðum þá í beinni frá Alþingi þar sem samgönguáætlun var rædd og frá VR þar sem formaður félagsins mun bregðast við gjaldskrárhækkunum Veitna. Í sportinu tengjum við okkur við Svíþjóð þar sem okkar menn eru staddir á EM í handbolta og rýnum í leik morgundagsins sem verður stóra próf strákanna okkar á mótinu hingað til. Í Íslandi í dag kynnumst við yngsta stórmeistara landsins, sem segist stefna á heimsmeistaratitilinn í annarri framandi íþrótt. Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Sýnar, Vísis og Bylgjunnar á slaginu hálf sjö.
Kvöldfréttir Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Fleiri fréttir Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Sjá meira