„Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. janúar 2026 10:53 Anahita Sahar Babaei tók fyrst til máls. Vísir/Anton Brink Aðalmeðferð er hafin í máli tveggja aðgerðasinna sem dvöldu í 33 klukkustundir í tveimur hvalveiðiskipum árið 2023. Þær telja að um nauðsynlega aðgerð hafi verið að ræða.
Það var fjölmennt í dómsalnum í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar aðalmeðferð hófst yfir þeim Anahitu Sahar og Elissu May Philipps sem dvöldu á hvalveiðiskipunum í 33 klukkustundir í mótmælaskyni árið 2023. Anahita og Elissa eru kærðar fyrir annars vegar húsbrot og hins vegar að fylgja ekki skipunum lögreglu þegar þær klifruðu upp í tunnur á Hval 8 og 9, hvalveiðiskip í eigu Hvals hf., til að mótmæla hvalveiðum. Man ekki eftir fyrirmælum Fyrst var tekin skýrsla af Anahitu þar sem hún segist hafa reynt að fara allar löglegar leiðir og opinberar leiðir til að stöðva þann skaða sem væri að eiga sér stað. Vísar hún í skýrslu siðanefndar um hvalveiðar og ítrekar að enginn hefði brugðist við skýrslunni. „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn, fyrst að enginn var að grípa til aðgerða til að stöðva þennan skaða og þess vegna settist ég í mastur hvalbátsins á friðsaman hátt og án þess að valda skaða eða skemmdum,“ sagði hún. Anahita sagðist ekki muna eftir því að hafa fengið skýra skipun frá lögreglunni né verið beðin um að yfirgefa tunnuna. Hún hafði hlekkjað sig við eitthvað í botni tunnunnar sem hún síðar komas að því að það væri eitthvað drasl. Hins vegar var henni hótað að valdi yrði beitt til að fjarlægja hana. Öruggara að klifra sjálf heldur en með aðstoð lögreglunnar Hún segir að lögreglumennirnir hafi beitt hana miklu afli og reynt að toga hana með sér. Vegna þessa hafi jakkinn hennar rifnað og einnig vettlingur annars lögreglumannsins sem reif í hana. Þeir hafi tekið af henni bæði símann og bakpokann. Anahita óttaðist því um öryggi sitt og sagði að hún hefði upplifað sig öruggari þegar hún var sjálf að klifra upp mastrið heldur en þegar lögreglan var að koma henni niður. „Ég sagði aftur og aftur að þið væruð að meiða mig. Svörin sem ég fékk var að þau vissu að þetta væri óþægilegt en ef ég myndi vilja að svo væri ekki ætti ég að standa upp og ég svaraði að ég gæti það ekki því ég var hlekkjuð,“ segir Anahita. „Ég tel að þetta sjáist ekki utan frá og ekki á upptöku svo maður þarf að beita ímyndunaraflinu en ég var hlekkuð við enda tunnunnar og klemmd milli platna og það voru tveir menn ofan á mér. Ég vissi ekki hvert planið þeirra væri og aflið sem var beitt þegar verið var að toga mig var gríðarlega mikið.“ Fékk blóðnasir Lögreglumaður sem tók þátt í aðgerðum lögreglu á vettvangi mótmælanna segir að bakpokinn, sem Anahita var hlekkjuð við, hafi verið fjarlægður eftir að klippt var á hlekkina. Það hafi verið gert til að skapa vinnurými svo hægt væri að tosa hana úr tunnunni. „Við vorum að reyna að toga hana upp þegar við vorum búin að skapa vinnurými. Ég held að úlpan hafi byrjað að rifna þá. Hún gerði sig þunga sem auðveldaði ekki að fjarlægja hana,“ sagði hann. Þá hafi hann, og kollegar hans, gert henni skýrt að markmið aðgerða þeirra væri að fjarlægja hana úr skipinu. Þeim hafi verið skipað af yfirmanni sínum að fjarlægja ætti hana úr skipinu. Þeir hafi hins vegar ekki verið að flýta sér, heldur unnið málið á sínum hraða. Hann játar að blóð hafi verið í botni tununnar en það hafi verið hans eigið blóð þar sem að hann fékk blóðnasir við átökin að toga Anahitu upp. Vissi að um væri að ræða einkalóð Þrátt fyrir að hún muni ekki eftir því að hafa verið beðin um að fara niður gerði hún sér grein fyrir því að markmið lögreglunnar væri að ná henni niður. Þær voru með einhvers konar grunnöryggisbúnað, líkt og Anahita lýsir því, en hann hafi virkað illa. Hins vegar taldi hún að mótmælin væru nauðsynleg til að stöðva skaðann sem hvalveiðar yllu. Anahita var spurð út í skýrslutöku lögreglu sem fór fram nokkrum dögum eftir mótmælin. Þar játaði hún að hafa vitað að hafa farið í skipið í óleyfi og að um væri að ræða einkalóð. Hins vegar sagði hún fyrir dómi að hún hafi ekki séð nein skilti eða merkingar sem sögðu að skipið væri einkalóð. Forstjóri Hvals hf. segir að skilti hafi verið á landganginum þar sem stóð bæði á íslensku og ensku að óviðkomandi væri bannaður aðgangur. Hún skilji ekki íslensk lög að fullu og hafi því ekki gert sér grein fyrir því að mögulega væri um húsbrot að ræða.
Mótmæli í tunnum Hvals 8 og 9 Hvalveiðar Dómsmál Hafnarmál Mest lesið „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Innlent Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt Innlent Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Íslendinga Innlent Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Erlent Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Innlent Útlit fyrir hríðarbyl á Suðurlandi Veður Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Erlent Kynna breytta Reykjavíkurleið í dag Innlent „Ég vil bara að þetta sé sanngjarnt. Að komið sé eins fram við alla“ Erlent Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Innlent Fleiri fréttir Sundhöllinni lokað á meðan píparar ráða ráðum sínum Flykktust upp í turn til að sjá hvort sexan kæmist í loftið Kynna breytta Reykjavíkurleið í dag Bein útsending: Ásgeir og Þórarinn mæta fyrir þingnefnd Dregur líklega úr svifryksmengun seint í dag Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Grunaður fíkniefnasali stöðvaður fyrir að tala í síma Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Íslendinga Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Óhollustuskattur hafi mest áhrif á þá tekjulægri Gunnar, Guðfinnur og Sigríður á leið úr bæjarstjórn „Alveg hræðilegt ástand“ Aldraðir stíga fram og opna sig um „hræðilega stöðu“ Ekið á gangandi vegfaranda Suðurlandsvegi lokað vegna áreksturs tveggja bíla „Þetta er sorglegur dagur fyrir lýðræðið“ „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Brynja Dan vill leiða lista Framsóknar í Garðabæ Samþykktu heimild til að svipta flóttamenn vernd Þurfa að brúa sex milljarða króna bil Formaður Pírata sækist eftir öðru til fjórða sæti Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Styrkur svifryks áfram hár í borginni Lögga ákærð fyrir leit án heimildar Yfirvöld hafi útvegað tvö ný rými og óbreytt ástand Afi sakaður um að nudda kynfæri stúlku Sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip Sjá meira