Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Magnús Jochum Pálsson skrifar 27. janúar 2026 14:22 Steinunn Ólína og Gunnar í góðum fíling í friðarinnlögninni. Leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir virðist ástfangin upp fyrir haus af kærasta sínum, framkvæmdastjóranum Gunnari K. Gylfasyni, og birti mynd af parinu að kúra upp í rúmi í „friðarinnlögn“ í anda John Lennon og Yoko Ono.
Við myndina sem Steinunn birti á Facebook í hádeginu skrifar hún „Bed-in for Peace ☮️ ❤️ Kveðjur úr friðarinnlögn!“ auk nokkurra friðarmyllumerkja. Ekki er ljóst hvort parið er beinlínis í eiginlegri innlögn, þá einhvers konar hvíldarinnlögn. Aftur á móti vísar hugtakið „bed-in for peace“ greinilega í gjörning hjónanna Johns Lennon og Yoko Ono sem vorið og sumarið 1969 dvöldu tvívegis vikulangt uppi í rúmi hótelherbergja til að mótmæla Víetnam-stríðinu. Hjónin voru í viku uppi i rúmi á Hilton-hótelinu í Amsterdam frá 25. til 31. mars og svo aftur í viku frá 26. maí til 1. júní á Queen Elizabeth-hótelinu í Montreal. Hugtakið „bed-in“ er dregið af „sit-in“ sem felst í því að mótmælendur sitja við eða fyrir framan opinberan stað þar til þeir eru reknir í burt, handteknir eða kröfum þeirra mætt. John og Yoko eða Halli og Laddi Myndin hefur vakið mikla athygli og fjöldi fólks skrifað ummæli við hana. „Lennon og Yoko,“ skrifaði Vigfús Bjarni Albertsson við myndina og kveikti greinilega á vísuninni. En þá svaraði Steinunn: „Halli og Laddi eða Bing & Gröndahl.“ „John Lennon og Yoko Ono? Make love, not war. Ekki leiðum að líkjast,“ skrifaði bókmenntafræðingurinn Helga Kress í öðrum ummælum. John og Yoko á Hilton-hótelinu í Amsterdam. „Friðarinnlögn er dásamlegt orð,“ skrifaði Ásthildur Kjartansdóttir við færsluna og svaraði Steinunn þá: „Ég er að skipuleggja slíkar ferðir! Læt þig vita!“ Fjallað var um samband þeirra Steinunnar og Gunnars síðasta vor en þau höfðu þá verið að slá sér upp um nokkurra mánuða bil. Steinunn hafði þá áður verið gestur Ásu Ninnu Pétursdóttur á Bylgjunni ásamt Halldóru Geirharðs á aðfangadag 2024 þar sem hún sagðist hafa „náð sér í jólakærasta“. Sjá einnig: Ástin blómstrar hjá Steinunni Gunnar er viðskipta- og hagfræðimenntaður, hefur verið í eigin rekstri um árabil og var á lista hjá Vinum Kópavogs í síðustu sveitastjórnarkosningum. Steinunni Ólínu þarf vart að kynna, hefur leikið í sjónvarpi, kvikmyndum og á sviði á löngum ferli og bauð sig fram til forseta í síðustu forsetakosningum. Færslu Steinunnar má sjá í heild sinni hér að neðan:
Ástin og lífið Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Sjá meira