Alfreð enn kóngurinn en „jarðaður út og suður“ Aron Guðmundsson skrifar 31. janúar 2026 10:48 Alfreð Gíslason kann leikinn betur en flestir aðrir Vísir/Getty Alfreð Gíslason er búinn að koma þýska landsliðinu í úrslitaleik EM í handbolta. Undir mikilli pressu og gagnrýni framan af sýndi Íslendingurinn að hann er ótvíræður kóngur í Þýskalandi að mæti sérfræðinga Besta sætisins. Þjóðverjar nái engum árangri nú til dags nema með Íslending í brúnni.
Þjóðverjar lögðu Króata að velli í undanúrslitunum í gær á móti þar sem að þýska liðið hefur farið stigvaxandi eftir því sem líður á það. Mikil pressa var sett á Alfreð fyrir mót þar sem að Andreas Michelmann, formaður þýska handknattleikssambandsins, sagði stöðu Alfreðs sem landsliðsþjálfara ekki örugga þó svo að samningur hans gildir yfir HM í Þýskalandi 2027. Eftir stór mistök Alfreðs í öðrum leik Þýskalands á EM gegn Serbum í leik sem endaði með jafntefli fóru strax að heyrast háværar kröfur um að Alfreð yrði rekinn úr starfi. Síðan þá hefur Þýskaland unnið lið á borð við Spán, Portúgal, Noreg, Frakkland og nú síðast Króatíu og mætir Dönum í úrslitaleiknum á morgun. „Númer eitt. Alfreð Gíslason þarf ekki að sanna sig í Þýskalandi. Þar er hann kóngurinn,“ sagði Rúnar Kárason um afrek Alfreðs í Besta sætinu. „Hann er algjör kóngur í handboltanum þar. Alfreð kemur sjálfur fyrir mót og segir að þetta þýska landslið sem hann er með í höndunum núna sé besta landslið sem hann hefur þjálfað. Langbesti hópurinn. Það eru risa orð. Það er svo mikil vigt í því sem að Alfreð segir því hann er með einhverja svakalegustu metorðaskrá í heimi. Það eru fáir þjálfarar sem skákað honum þar.“ Alfreð í stöðu þar sem að hann getur ekki tapa. „Annað hvort er hann bara rekinn ef það gengur illa og þá fer hann hlægjandi í bankann á óuppsegjanlegum samningi og allt það. Eða þá að hann heldur áfram að vera kóngurinn sem hann er, fer alla leið og getur sagt mönnum að þetta hafi hann vitað allan tímann. Það er bara að raungerast núna. Það er ekkert búið að breytast, Alfreð Gíslason er enn kóngurinn í Þýskalandi.“ Einar Jónsson, þjálfari ríkjandi Íslands- og bikarmeistara Fram, tók undir orð Rúnars. „Hann tekur eitthvað eitt leikhlé á vitlausum tíma og það verður allt vitlaust. Alfreð er kóngurinn í Þýskalandi en það er endalaust verið að taka hann í gegn. Hann er jarðaður út og suður, ein mistök og hann er jarðaður. Þetta er ógeðslega erfitt umhverfi. Einhverjir hafa sagt það vera mjög tvískipt. Það eru sumir sem eru á því að það megi ekki útlendingur þjálfa þýska landsliðið, þeir bara hata það, en það bara er ekki til þýskur þjálfari sem getur þjálfað þá. Jú Heiner Brand en það eru einhver áttatíu ár síðan,“ sagði Einar kíminn. „Hann var flottur á sínum tíma en svo eru þetta bara Dagur Sigurðsson og Alfreð Gíslason sem hafa náð einhverjum árangri með þýska landsliðið. Það er búið að reyna einhverja þýska þjálfara en það er bara katastrófa.“ Nánari umræðu um Alfreð, þýska landsliðið og horfurnar fyrir úrslitaleikinn gegn Dönum má heyra í Besta sætinu í spilaranum hér fyrir ofan eða í gegnum hlaðvarpsveitur hér fyrir neðan:
Besta sætið EM karla í handbolta 2026 Handbolti Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Sjá meira