Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein Agnar Már Másson skrifar 31. janúar 2026 13:46 Mette-Marit varð krónprinsessa er hún kvæntist Hákoni Noregsprins. AP Norska krónprinsessan Mette-Marit viðurkennir að hafa dvalið á heimili Jeffreys Epstein í Palm Beach árið 2016. Hún biðst afsökunar á tengslum sínum við kynferðisafbrotamanninn alræmda en hún er nefnd á nafn nokkur hundruð sinnum í Epstein-skjölunum svokölluðu. Konungur Dana er einnig nefndur í skjölunum og prinsessa Svíþjóðar.
Ríflega þrjár milljónir skjala úr Epstein-skjölunum svokölluðu voru gerð opinber af bandaríska dómsmálaráðuneytinu í gær en þar er krónprinsessan Mette-Marit nefnd nokkur hundruð sinnum. Epstein-skjölin innihalda öll þau gögn sem dómsmálaráðuneytið hefur aflað í gegnum árin vegna rannsókna sem tengst hafa brotum kynferðisbrotamannsins Jeffreys Epstein og annarra sem honum tengjast, eins og Ghislane Maxwell, fyrrverandi kærustu hans og aðstoðarkonu til langs tíma. Meðal annars er um að ræða tölvupósta Epsteins og önnur skilaboð, skrár sem fundust í tölvum hans á borð við myndir sem hann hafði sótt á netið og ýmislegt annað. Það að nafn einhvers komi fram í skjölunum þarf ekki að þýða að viðkomandi hafi verið grunaður um að hafa brotið af sér á einhvern hátt. Í skjölunum koma þó fram póstsamskipti milli Epsteins og Mette-Marit. Þar munu Epstein og prinsessan hafa gjarnan boðið hvort öðru í hádegisverð, kaffi og jafnvel verslunarferðir. Þá kemur enn fremur fram í póstsamskiptunum hennar við aðstoðarmann Epsteins að hún hafi planað að gista í lúxussloti kynferðisbrotamannsins í Palm Beach árið 2013, að því er norska sjónvarpsstöðin TV2 greinir frá. Þegar þarna var komið við sögu hafði Epstein þegar játað að sök um að hafa selt ólögráða stúlkur í vændi árið 2008. Höllin staðfestir svo við TV2 að Mette-Marit hafi dvalið í húsi Epsteins í Palm Beach í fjóra daga. Þar hafi hún dvalið ásamt vinkonu sinni. Biðst afsökunar Guri Varpe, upplýsingafulltrúi konungshallarinnar, neitar því við norska miðla að prinsessan hafi heimsótt alræmda eyju Epsteins og að Hákon krónprins hafi aðeins hitt Epstein einu sinni, þegar þau hittu hann á götum eyjunnar St. Barts. Varpe segir við VG að parið muni ekki eftir því hvort Epstein hafi hitt börn þeirra þá. „Jeffrey Epstein ber sjálfur ábyrgð á sínum gjörðum. Ég þarf að axla ábyrgð á því að ég hefði ekki gáð að bakgrunni Epsteins betur og að ég hefði ekki gert mér grein fyrir því nógu fljótt hvers konar manneskja hann væri. Mér þykir það afskaplega leitt og þetta er ábyrgð sem ég þarf að axla,“ segir í yfirlýsingu prinsessunnar til fjölmiðla. Fjöldi nafntogaðra einstaklinga er nefndur í Epstein-skjölunum, meðal annars fyrrverandi forsetafrú Íslands, Dorrit Moussaieff. Danakonungur og Svíaprinsessa nefnd Enn fremur er fleira kóngafólk en Mette-Marit nefnt í skjölunum. Friðrik Danakonungur, sem þá var krónprins, er nefndur í skjölunum í tengslum við nokkra viðburði frá árinu 2012 en Epstein sjálfur var ekki á gestalista neinna þessara viðburða. Í yfirlýsingu úr Amalíuborgarhöll segir að konungurinn hafi aldrei hitt kynferðisafbrotamanninn en samkvæmt póstsamskiptum átti Friðrik að hitta einn af helstu samstarfsmönnum Epsteins, breska kauphéðininn Ian Osborne. Sófía Svíaprinsessa er einnig nefnd, þá í tengslum við sýningu á Boradway árið 2012, þar sem henni var boðið sem einum af gestum Epsteins. Var það aftur á móti áður en hún kvæntist Filipusi Svíaprins og varð þannig prinsessa. Sænska höllin hefur oft áður gefið það út að Sófía hafi áður þekkt Epstein í kringum 2005 en hafi ekki hitt hann í um það bil 20 ár. Þarna eru ótalin tengsl Andrew Mountbatten-Windsor, sem hefur verið sviptur titli sínum sem Andrés Bretaprins vegna náinna tengsla hans við Epstein.
Kóngafólk Mál Jeffrey Epstein Noregur Danmörk Svíþjóð Mest lesið Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Innlent Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Innlent Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Erlent Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Innlent Fleiri fréttir Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Sjá meira