Myndir þú vilja losna við áhyggjur? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar 1. febrúar 2026 22:32 Ef þér byðist að losna við áhyggjur í eitt skipti fyrir öll, myndir þú þiggja það? Þú myndir aldrei framar hafa áhyggjur af neinu; hvorki heimsmálum, siðspilltum valdhöfum, vöxtum, loftslagsbreytingum, heilsufari ættingja né skjátíma barnanna. Hvernig væri það? Sumir myndu hiklaust taka boðinu og þætti það algjör no-brainer. Hinsvegar kæmi hik á aðra, jafnvel þá sem vanalega eru þjakaðir af áhyggjum. Hvað veldur því? Ein ástæðan er sú að okkur finnst ástæða til að hafa áhyggjur af ýmsum málum (sem það í rauninni er) og þætti eins og okkur stæði á sama, ef við hefðum ekki af þeim áhyggjur. En er það svo að manni standi á sama þótt maður hafi ekki stöðugar áhyggjur af einhverju? Þykir til dæmis þeirri móður vænna um börnin sín sem hefur af þeim eilífar áhyggjur? Innst inni finnst okkur líka að við séum að gera eitthvað í málunum með því að hafa áhyggjur. Mark Twain lét eitt sinn þau orð falla að hann hefði glímt við þúsundir vandamála um ævina, sem fæst hefðu orðið að veruleika. Með öðrum orðum var hann alltaf að leysa úr því sem hann sá fyrir sér að gæti klúðrast. Áhyggjur eru nefnilega röð hugsana um það sem farið geti úrskeiðis, eins konar atburðarás eða teiknimyndasaga þar sem hver hörmungin rekur aðra. Þegar þetta gerist finnum við okkur knúin til að leysa úr þessum ímynduðu uppákomum. En þá vaknar spurningin hvort þessi hugarleikfimi sé gagnleg. Erum við með þessu móti betur undir það versta búin? Ekki segja vísindin, og virðist sem við bökum okkur einungis vanlíðan. Áhyggjur eru nefnilega aðeins gagnlegar ef þær leiða til þess að við leysum úr raunverulegum, aðsteðjandi málum. Eða leggjum okkar af mörkum, hið minnsta. Gagnlegt getur til dæmis verið að leiða hugann að hættunni á því að missa stjórn á bílnum í hálku, ef það verður til þess að farið sé á vetrardekk áður en lagt er upp í langferð. Það gerir hins vegar lítið gagn að leyfa háskahugsuninni að leika lausum hala og hringsnúast í kringum sjálfan sig. Hvernig má draga úr áhyggjum? Við verðum seint allsendis áhyggjulaus, enda er það hvorki raunhæft né æskilegt ástand. Hins vegar má draga úr óhóflegum áhyggjum og er full ástæða til, enda skapa þær kvíða og spennu, sem og eirðarleysi, þreytu og svefntruflanir. Þær aftra því alveg að slakað sé á notið lífsins. Fyrsta skrefið er þá að fylgjast með þessum áhyggjum og skoða hvort þær snúi að raunverulegum eða ímynduðum vanda, og spyrja sig þá, ef vandinn er raunverulegur, hvort gera megi eitthvað í honum hér og nú. Það eina sem vert er að hafa áhyggjur af, er það sem snýr að raunverulegum vanda sem gera má eitthvað tafarlaust í. Þá er raunar gagnlegra að grípa til aðgerða, en að velta vöngum. Það getur hins vegar verið þrautin þyngri að hætta að hafa áhyggjur, þótt vitað sé að þær séu gagnslitlar. Því þýðir líka lítið að segja sér eða öðrum að hætta að hafa áhyggjur. Ef til vill er rót áhyggjuvandans sú að fólk treystir því ekki að það geti höndlað ófyrirséðar aðstæður og erfiðleika. Það reynir því að draga úr óvissu tilverunnar með því að sjá erfiðleikana fyrir og forðast óljósar aðstæður þar sem eitthvað gæti farið úrskeiðis. Meðferð við áhyggjuvanda miðar því að því að leyfa áhyggjum að koma án þess að bregðast við þeim, hvorki í huganum né með því að stjórnast í umhverfinu. Sækja enn fremur í nýjar, tvíræðar og ófyrirséðar aðstæður til að komast að raun um að þær megi oftast ráða við, jafnvel þótt eitthvað komi upp á. Lífið verður auk þess skemmtilegra með svolítilli klípu af óvissu, enda væri það ósköp leiðinlegt ef maður sæi allt fyrir. Jorge Luis Borges fangaði þetta vel í ljóði sínu Lífsstundirnar í þýðingu Finnboga Guðmundssonar sem hér fer á eftir. Lífsstundirnar Ef ég mætti lifa líf mínu á nýjan leik,myndi ég á því skeiði reyna að láta mér verða á fleiri mistök.Kappkostaði ekki við að vera fullkominn heldur slakaði á;færi oftar heimskulega að ráði mínu en ég hef gert til þessa;tæki í raun fátt alvarlega,hirti mig miður.Ég tefldi oftar á tvær hættur, færi fleiri leiðir, horfðioftar á sólsetrið, klifi fleiri fjöll, synti fleiri fljót.Ég færi til fleiri staða en ég hef áður komið á fætimeiri ís og minni baunir, glímdi við fleiriraunveruleg vandamál og færri ímynduð.Ég var einn þeirra manna, sem lifði hverjaævistund skynsamlega og rækilega, átti auðvitað hamingjustundir.Yrði mér afturhvarfs auðið, reyndi ég að einskorða mig við góðustundirnar. En lífið er, skyldirðu ekki vita það, sett samanúr þeim, þessum stundum; og tapaðu nú ekki af þeirristund, sem yfir stendur. Ég var einn þeirra, sem fór hvergi án hitamælis,hitabrúsa, regnhlífar og fallhlífar; ef ég ætti aðlifa að nýju, ferðaðist ég léttar búinn.Mætti ég lifa á nýjan leik; legði ég upp berfættursnemma vors og gengi áfram allt til haustloka.Ég færi fleiri ferðir með hringekjunni; horfðioftar á sólina rísa og léki mér við fleiri börn,ef ég ætti enn líf fyrir höndum.En sjáðu til, ég er áttatíu og fjögurra ára og veit,að ég er að dauða komin. Höfundur er yfirsálfræðingur við Kvíðameðferðarstöðina. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sóley Dröfn Davíðsdóttir Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun