Skoðun

„Við“ skiptaráð

Dofri Hermannsson skrifar

Viðskiptaráð er fallegt nafn yfir lobbíista í viðskiptalífinu. Hljómar virðulega. Traust. Jafnvel eins og aðili sem stendur vörð um almannahag. Svo er ekki.

Viðskiptaráð hugsar um eigin hag. Það innheimtir veltutengd félagsgjöld. Þeir sem borga mest ráða mestu.

Áhugavert væri að sjá hvað virkjanageirinn og gagnaver eru að greiða inn í hagsmunasamtökin. Aðeins með hagsmunum þeirra er hægt að skýra sturlaða tillögu lobbíastanna um að leggja Rammaáætlun niður og tvö- til fjórfalda raforkuframleiðslu á Íslandi.

Ísland framleiðir rúmlega tvöfalt meira af raforku á mann en sú þjóð sem er í öðru sæti, Noregur. Næstum þrefalt meira en þjóðirnar í sætum 3-5.

Þjóðin var klofin í herðar niður í átökum um Kárahnjúkavirkjun. Rammaáætun (2011) var hönnuð til að skapa sátt á milli virkjunarsjónarmiða og náttúruverndarsjónarmiða. Ákvarðanir skyldu teknar á faglegum grunni.

Æ síðan hefur virkjanageirinn og misvitrir stjórnmálamenn reynt að eyðileggja Rammann. Af þeim síðarnefndu er núverandi umhverfisráðherra verstur. Það er sárt að sjá sama flokk og kom á sátt í málaflokknum rífa sáttina í sundur.

Þegar lobbíistar og stjórnmálamenn kveina um orkuskort segja þeir ósatt. Ekki óvart heldur viljandi. Þeir vita sem er að í nýtingarflokki Rammanns eru virkjunarkostir sem samanlagt gefa meiri orku en tvær Kárahnjúkavirkjanir.

Skýrsla lobbíastanna er herkænska. Hræðsluáróður, til að einkaaðilar geti fengið að hrifsa til sín almannagæði eins og víðerni landsins og náttúruperlur. Sérstöðu Íslands.

Þetta er lævís aðferð til að stela arfinum frá komandi kynslóðum.

Núverandi stjórnarformaður Landsvirkjunar, sem nýlega bolaði farsælum forstjóra úr starfi, sat í stjórn Viðskiptaráðs í 8 ár. Viðskiptaráð hefur ítrekað lagt til að Landsvirkjun verði seld einkaaðilum.

Skiptaráð er gamalt orð yfir aðila sem skiptir upp þrotabúum, félagsbúum og dánarbúum. Viðskiptaráð vill taka þinn dýrasta arf, náttúru Íslands, og skipta henni á milli hagsmunaaðila sinna. „Við“ um „okkur“, frá „okkur“ til „okkar“. „Við“ skiptaráð.

Höfundur er hagfræðingur




Skoðun

Skoðun

Allir með

Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar

Sjá meira


×