Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Kjartan Kjartansson skrifar 2. febrúar 2026 16:02 Bifröst var himnesk regnbogabrú upp til Ásgarðs í norrænni goðafræði. Akademískir starfsmenn við háskólann sem er kenndur við brúna eru þó ekki í sjöunda himni þessa dagana. Vísir/Vilhelm Kennara við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst var sagt upp störfum í sömu viku og stjórnendur skólans báðu siðanefnd um að kanna störf hans en fyrir ótengdar sakir. Hann var sagður hafa brotið trúnað með því að kenna við annan háskóla.
Væringar hafa verið innan veggja Háskólans á Bifröst undanfarin misseri eftir að stjórnendur skólans bentu siðanefnd hans á möguleg höfundaréttarbrot þriggja starfsmanna í nóvember. Félag akademískra starfsmanna við skólann lýsti í kjölfarið yfir vantrausti á Margréti Jónsdóttur Njarðvík rektor og tvo aðra stjórnendur vegna þess hvernig þau stóðu að verki. Halda starfsmennirnir því fram að stjórnendur skólans hafi notað gervigreind til þess að álykta að þeir hefðu ekki raunverulega lagt af mörkum til fræðigreina sem þeir voru skráðir meðhöfundar að. Einn þremenninganna sem stjórnendur vildu að siðanefnd skoðaði hvort að hefði brotið reglur var rekinn í sömu viku og honum var tilkynnt um ábendinguna í nóvember samkvæmt upplýsingum Félags akademískra starfsmanna. Hanna Kristín Skaftadóttir, formaður félagsins, er ein þeirra sem voru kærð til siðanefndar. Sigurrós Jónsdóttir, markaðs- og samskiptastjóri Bifrastar, staðfestir að einum þremenninganna hafi verið sagt upp störfum en það hafi verið „alveg“ ótengt siðanefndarmálinu. Trúnaðarbrestur að kenna áfanga annars staðar Sá sem var rekinn var kennari í stjórnun. Brottreksturinn er þó ekki sagður hafa tengst ætluðum höfundarréttarbrotum hans heldur því að hann hafi kennt áfanga við annan háskóla. Með þeirri kennslu hafi hann gerst sekur um trúnaðarbrest gagnvart Guðrúnu Johnsen, deildarforseta viðskiptadeildar. Þessu hafnar starfsmannafélagið. Margir kennararar stundi kennslu við fleiri en einn háskóla á Íslandi og það sé beinlínis hvatt til þess í mannauðshandbók Háskólans á Bifröst að starfsfólk byggi upp ytri tengsl og viðhaldi, meðal annars með því að kenna annars staðar. Guðrúnu hafi átt að vera kunnugt um þessi störf kennarans og að hún hafi ekki gert athugasemd við þau fyrr en þau voru skyndilega orðin brottrekstrarsök. Sigurrós samskiptastjóri vildi ekki staðfesta neitt um ástæður brottrekstrar starfsmannsins þar sem hún gæti ekki tjáð sig um mál einstakra starfsmanna. Félag akademískra starfsmanna við Bifröst hafa vísað til þess að stjórnendur skólans hafi „kært“ starfsmennina til siðanefndar. Sigurrós segir enga kæru farna í gang. Stjórnendur hefðu aðeins sent siðanefnd ábendingu um möguleg brot sem nefndin skoði nú.
Háskólar Gervigreind Borgarbyggð Deilur í Háskólanum á Bifröst Tengdar fréttir Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Hanna Kristín Skaftadóttir, lektor við Háskólann á Bifröst segir að líkja megi kæru stjórnenda skólans til höfuðs henni til siðanefndar við „faglega aftöku.“ 17. janúar 2026 14:47 Loðin svör gervigreindar sem brjóti gegn höfundarrétti: „Engin þakklæti til stofnunarinnar“ Persónuvernd hefur verið bent á vinnubrögð rektors Háskólans á Bifröst sem virðist hafa notað gervigreind til að rökstyðja ásakanir um að starfsmenn hafi merkt sig ranglega sem meðhöfunda fræðigreina. Erlendir meðhöfundar greinanna eru sagðir hafa staðfest þátttöku fræðimannanna frá Bifröst. 15. janúar 2026 22:02 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Sjá meira
Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Hanna Kristín Skaftadóttir, lektor við Háskólann á Bifröst segir að líkja megi kæru stjórnenda skólans til höfuðs henni til siðanefndar við „faglega aftöku.“ 17. janúar 2026 14:47
Loðin svör gervigreindar sem brjóti gegn höfundarrétti: „Engin þakklæti til stofnunarinnar“ Persónuvernd hefur verið bent á vinnubrögð rektors Háskólans á Bifröst sem virðist hafa notað gervigreind til að rökstyðja ásakanir um að starfsmenn hafi merkt sig ranglega sem meðhöfunda fræðigreina. Erlendir meðhöfundar greinanna eru sagðir hafa staðfest þátttöku fræðimannanna frá Bifröst. 15. janúar 2026 22:02