Bifhjólafólk rukkað fyrir akstur í janúar – leikhús fáránleikans! Njáll Gunnlaugsson skrifar 3. febrúar 2026 07:30 Þessi fyrirsögn hér fyrir ofan er mótsögn í sjálfu sér, en bifhjólafólk kvartar nú hástöfum yfir áætlun á kílómetragjaldi og skyldi kannski engan undra. Þrátt fyrir góða tíð fyrir bifhjól í janúarmánuði eru flest þeirra í vetrarhýði og því kemur fólki á óvart að með nýjum skatti um kílómetragjald eigi það að fara að greiða fyrir akstur bifhjóla í janúar. Undirritaður hefur atvinnu af því að kenna á bifhjól og þarf því lögum vegna að vera með mörg bifhjól á númerum til að geta kennt alla réttindaflokka. Vegna skilyrða Frumherja um bifhjólapróf er ekki kennt nema frá apríl-október að jafnaði. Ef við skoðum aðeins hvað fyrirtæki undirritaðs á að greiða fyrir hvert bifhjól kemur fljótt í ljós að því yngra sem bifhjólið er, því hærri er áætlunin. Ef bifhjólið hefur náð að minnsta kosti þriggja ára aldri virðist formúlan virka nokkuð vel og sem dæmi borgar þriggja ára gamalt kennsluhjól fyrir 114 (óekna) kílómetra í janúar 2026 eða 1.368 km fyrir árið sem er nokkuð nærri lagi. Hins vegar á nýtt og ókeyrt bifhjól síðan í september að greiða 5.487 kr fyrir 1.320 (óekna) kílómetra í janúar og tvö önnur bifhjól, sem einnig voru keypt 2025 greiða 14.151 kr fyrir 3.409 (óekna) kílómetra hvort! Samkvæmt því virðist formúlan gera ráð fyrir því að báðum þessum bifhjólum sé ekið yfir 40.000 km á ári sem er í engu samræmi við þann akstur sem settur var inn í kerfið fyrir 20. janúar af undirrituðum, sem var í öðru tilvikinu 571 km fyrir akstur síðan í lok september, og í hinu 2.842 km síðan um mitt sumar. Bifhjólasamtök Lýðveldisins, Sniglar báðu Samgöngustofu að vinna fyrir sig tölur um meðalakstur bifreiða og bifhjóla 2022-24. Í stuttu máli er meðalakstur bifreiða á þessu tímabili 12.211 km og bifhjóla 2.238 km og munurinn því sem næst sexfaldur. Við samanburð á greiðsluseðlum vegna kílómetragjalds nokkurra bifhjóla, virðist algeng áætlun gera ráð fyrir 1.240 km meðalakstri bifhjóla á mánuði sem samkvæmt þessari könnun Snigla er langt frá því að vera rétt, og miklu nær því sem meðalakstur bíla er að jafnaði. Tekið skal fram að mjög auðvelt var að nálgast þessar tölur hjá Samgöngustofu og yfirvöldum hefði verið í lófa lagt að nálgast þær með einum tölvupósti, en það var ekki gert. Þess í stað hellist nú yfir starfsfólk skattsins innhringingar og tölvupóstar þar sem fárast er yfir þessum áætlunum af eigendum bifhjóla. Samkvæmt lögum á að skoða bifhjól í maí og þessum fyrirspurnum hefði fækkað umtalsvert ef áætlunum um ætlaðan vetrarakstur bifhjóla hefði verið frestað þangað til þá. Í þessu leikhúsi fáránleikans langar mér að benda á eitt atriði að lokum. Eitt af áhugamálum undirritaðs er söfnun, uppgerð og varðveisla gamalla bifhjóla. Þar sem að nokkur þeirra eru af gerðinni Harley-Davidson frá því í kringum 1930 sendi undirritaður fyrirspurn til skattsins hvort að þessi ökutæki fengu ekki undanþágu frá kílómetragjaldi þar sem að þau eru eldri en 1965 árgerð og ekki búin akstursmæli upphaflega, eins og þau eiga rétt á lögum samkvæmt. Svar skattsins sagði að sýna þarf fram á að ökutækið hafi aldrei verið með akstursmæli, ekki sé hægt að koma akstursmæli fyrir eða ekki sé hægt að lagfæra hann. Hraðamælar á þessi bifhjól voru aukabúnaður á sínum tíma og eru í dag mjög sjaldgæfir og þar af leiðandi dýrir. Þeir eru sjaldan í boði og fyrir fimm slík bifhjól fann undirritaður í fljótu bragði einn slíkan til sölu á alnetinu eins og er og kostaði hann 3.500 evrur, eða um hálfa milljón íslenskra króna! Ef setja þarf fimm slíka hraðamæla í öll þessi bifhjól þarf að kosta til miklu fé og fyrirhöfn, til þess eins að ríkið geti rukkað örfáar krónur árlega, því þeim er ekki ekið nema nokkra tugi kílómetra á ári. Undirritaður sendi ábendingar sínar til skattsins um þetta atriði um miðjan janúarmánuð og hefur ekki fengið svar við þeim ennþá. Í lok janúar 2025 voru aðstæður eins og hér sjást og ekkert bifhjól á götunum nema hliðarvagnshjól undirritaðs með drif á báðum afturhjólum. Höfundur er bifhjólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kílómetragjald Bifhjól Mest lesið Þegar sorg verður valdatæki Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hvalir éta frá okkur fiskinn? Valgerður Árnadóttir Skoðun Þorgerður leitar ESB-stuðnings úr ótrúlegustu áttum Júlíus Valsson Skoðun Skipti engu nema við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Afskipti Rússlands og ESB: tvöfalt siðferði í nafni lýðræðis Júlíus Valsson Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson Skoðun Svartkimi samfélagsins: Þegar tveir heimar mætast í yfirheyrsluherberginu Davíð Bergmann Skoðun Þegar líf er í húfi Jón Gunnar Jónsson Skoðun Stígum ölduna saman Víglundur Laxdal Skoðun Skoðun Skoðun Afskipti Rússlands og ESB: tvöfalt siðferði í nafni lýðræðis Júlíus Valsson skrifar Skoðun Gervigreind nýtist best með mannlegri þekkingu og reynslu Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Skipti engu nema við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Svartkimi samfélagsins: Þegar tveir heimar mætast í yfirheyrsluherberginu Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar sorg verður valdatæki Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hvalir éta frá okkur fiskinn? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Stígum ölduna saman Víglundur Laxdal skrifar Skoðun Þegar líf er í húfi Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þorgerður leitar ESB-stuðnings úr ótrúlegustu áttum Júlíus Valsson skrifar Skoðun Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu Davíð Bergmann skrifar Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Svartkimi samfélagsins: Þegar tveir heimar mætast í yfirheyrsluherberginu Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar