„Þetta er sárara en tárum taki“ Eiður Þór Árnason skrifar 4. febrúar 2026 16:34 Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins, segir málin alvarleg. Vísir/Lýður „Ég er bara gjörsamlega harmi slegin og maður getur varla tjáð sig öðruvísi en að fara að gráta. Þetta er að gerast alveg til 2002. Þarna er þetta að eiga sér stað í 27 ár. Hvar var þetta kerfi? Hvar hefur þetta kerfi verið eiginlega?“
Þetta segir barnamálaráðherra um raunir manna sem greina frá því að hafa verið beittir grófu ofbeldi yfir langt skeið á meðan þeir voru ungir í fóstri í sveitabæ á Suðurlandi. Kerfið hafi brugðist drengjunum sem hún lýsir sem hetjum. Fjallað var um mál mannanna í Kveik í gær sem voru ungir sendir á bæinn Bakkakot. Barnaverndaryfirvöld sendu börn á bæinn í tæpa þrjá áratugi. Níu menn hafa stigið fram og lýst grófu ofbeldi. Krefjast þeir rannsóknar og bóta frá hinu opinbera. Einn mannanna, Sigurður Ívar Sölvason, sagði í samtali við Kveik að hann hafi einu sinni verið sleginn svo fast að hann hafi flogið í gólfið. Sum börn sem dvöldu í Bakkakoti bjuggu þar allan ársins hring en önnur dvöldu í skemmri tíma. Viðmælendur Kveiks sögðu að þau börn sem dvöldu þar allt árið hafi hlotið verri meðferð en hin. Meira eftirlit í dag „Ég veit bara það að núna í dag er miklu meira eftirlit og ég mun sérstaklega skoða hvar í rauninni er verið að vista börn og hvernig þeim úrræðum er háttað og þetta er, þetta er sárara en tárum taki,“ segir Inga Sæland barnamálaráðherra. Hún ræddi málið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. „Þessir menn eru algjörar hetjur, þetta hefur haft djúpstæð áhrif og fyrir einhverja þeirra þannig að þeir hafa í rauninni gjörsamlega bugast í sinni tilveru eins og við sjáum og ég á bara erfitt með að tala um þetta,“ Lýsa líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi Sveitabærinn Bakkakot er á Rangárvöllum, á milli Hellu og Hvolsvallar. Þangað var fjöldi barna sendur í vistun á að minnsta kosti 27 ára tímabili frá 1975 til 2002, að því er fram kom í umfjöllun RÚV. Mest voru það barnaverndarnefndir sem sendu börn á bæinn en einnig voru dæmi um að foreldrar gerðu það. Í Kveik í gær stigu fimm menn fram í fyrsta skipti og lýstu miklu ofbeldi sem þeir segjast hafa orðið fyrir sem börn á bænum allt til ársins 2002. Það hafi fyrst og fremst verið bóndakonan á bænum sem hafi beitt þá ofbeldi, ýmist líkamlegu, andlegu eða kynferðislegu ofbeldi. „Mér finnst þetta svo ómennskt eitthvað. Að ráðast svona á börn sem eiga bágt fyrir. Ég bara skil ekki svona,“ segir Inga um málið. Fréttin hefur verið uppfærð.
Barnavernd Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Reykjavík síðdegis Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mál fósturbarna á Bakkakoti Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Innlent Fleiri fréttir Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Sjá meira