„Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 6. febrúar 2026 11:02 Elísa Viðarsdóttir spilaði sinn fyrsta leik fyrir Breiðablik í gærkvöldi. Breiðablik Elísa Viðarsdóttir íhugaði að hætta í fótbolta eftir síðasta tímabil en ákvað að láta slag standa og samdi við Breiðablik. Hún spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið í gærkvöld, gegn fyrrum félagi sínu Val.
Elísa spilaði með Val síðastliðinn áratug, vann fjölda titla og var fyrirliði liðsins síðustu árin, en ákvað að endursemja ekki þegar samningur hennar rann út í haust. „Það var margt sem hafði áhrif á þá ákvörðun. Ég var búin að eiga frábæra tíma í Val, klárlega bestu árin á mínum ferli, í rauðu treyjunni. En það var bara ýmislegt eins og ég segi. Ég þakkaði fyrir samning sem mér var boðinn þar og þannig fóru þær samningaviðræður bara ekkert lengra.“ Elísa spilaði í tíu ár með Val. Vísir/Hulda Margrét Þá kom það til greina að hreinlega hætta í fótbolta. „Já. Ég gaf mér góðan tíma til að hugsa þetta út frá öllum vinklum, en ég fann það bara mjög sterkt að ég var ekki til í að leggja skóna á hilluna alveg strax. Á meðan líkaminn er í góðu standi gef ég þessu séns og það er líka bara þannig að þegar maður hættir þá er maður hættur. Ég er nú bara 34 ára“ segir Elísa brosmild. Gleymir öllu sem hefur gengið á þegar dómarinn flautar Hún samdi síðan við helstu erkifjendur Vals, Íslandsmeistara Breiðabliks, og spilaði 76 mínútur í sínum fyrsta leik fyrir félagið í gærkvöld, í 1-2 tapi gegn Valskonum í Lengjubikarnum. „Auðvitað eru fullt af tilfinningum sem fylgja því og það er alltaf partur af leiknum, en maður þarf stundum að leggja tilfinningarnar til hliðar, hugsa um sjálfan sig og hvað er best fyrir mig og mína framtíð. Að sjálfsögðu er skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt… Þetta er bara fótbolti, ellefu á móti ellefu og tveir ólíkir litir á treyjum. Svo þegar dómarinn flautar til leiks gleymir maður öllu sem hefur gengið á fram að þessu.“ Fjallað var um félagaskipti Elísu í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan.
Breiðablik Valur Besta deild kvenna Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira