„Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 9. febrúar 2026 06:47 Margrét Jónsdóttir Njarðvík er rektor Háskólans á Bifröst. Vísir/Sara „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför, enda eru slík mál ekki gerð opinber af hálfu háskóla. Háskólinn á Bifröst hefur enga heimild til að reka siðarnefndarmál opinberlega. Viðbrögð Háskólans á Bifröst við umfjöllun í fjölmiðlum síðustu vikna verða því að skoðast í því ljósi.“
Þetta segir í erindi sem stjórn Háskólans á Bifröst sendi á starfsfólk og nemendur skólans í kjölfar þess að niðurstaða siðanefndar í máli þriggja starfsmanna lá fyrir. Bréfið fylgir tilkynningu sem send hefur verið á fjölmiðla, þar sem ítrekað er að á sama tíma og siðnefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu að starfsmennirnir þrír hafi ekki gerst brotlegir við siðareglur, hafi nefndin einnig komist að þeirri niðurstöðu að ekkert í gögnum málsins bendi til þess að „efasemdir um framlag höfunda hafi einkennst af hvatvísi eða verið settar fram af annarlegum ástæðum“. „Nefndin gerir ekki athugasemdir við störf dr. Margrétar Jónsdóttur Njarðvík, dr. Guðrúnar Johnsen og dr. Kaspers Kristensen,“ segir í tilkynningunni. Eftir að niðurstaða siðanefndar var gerð opinber hafa fulltrúar bæði nemenda og stjórnar Félags akademískra starfsmanna gert því skóna að Margréti sé ekki stætt í starfi. Stjórn Háskólans á Bifröst virðist hins vegar hafa tekið einarða afstöðu með rektor. „Í raun og veru hefur þetta mál aldrei snúist um niðurstöðu þessa ferlis hjá siðanefndinni, hver sem hún kynni að vera. Það var algjörlega ljóst fyrir okkur að það stæði ekki steinn yfir steini í þessari kæru og málsmeðferð. Eftir standa vinnubrögðin í kringum kærurnar og það hvernig yfirmenn okkar, okkar nánasta samstarfsfólk, fara í að kæra undirmenn sína til siðanefndar fyrir mjög langsóttar og óljósar sakir. Það er enn þá erfitt að átta sig á því hvað fólki gekk til,“ sagði Njörður Sigurjónsson, prófessor við Bifröst, í samtali við fréttastofu um helgina. „Viðbrögð rektors við niðurstöðu siðanefndar í dag vekja jafnframt alvarlegar spurningar um dómgreind, ábyrgð og raunveruleikaskyn. Með því að lýsa niðurstöðunni sem „bestu mögulegu niðurstöðu“ og halda því fram að „allir vinni þegar enginn tapar“ er horft fram hjá þeirri staðreynd að vantrausti hefur þegar verið lýst yfir. Í slíku samhengi er augljóst að ekki vinna allir þótt enginn sé talinn brotlegur,“ sagði Selma Klara Gunnarsdóttir, hagsmunafulltrúi Nemendafélags Háskólans á Bifröst í skoðanagrein á Vísi. Í erindi sínu til starfsfólks og nemenda segist stjórnin meðvituð um að umræður síðustu vikna hafi haft „mikil og djúpstæð áhrif á starfsfólk og nemendur háskólans“. „Við hörmum að málið hafi ratað í fjölmiðla,“ segir í bréfinu. „Eins og fram hefur komið tekur nú við sáttaferli sem er á forræði stjórnar. Við ætlum að taka það föstum tökum og gerum okkur grein fyrir hversu mikilvægt er að ná sáttum innan háskólans.“ Bréfið í heild: „Kæru nemendur og starfsfólk Háskólans á Bifröst, Við vitum að umræður síðustu vikna hafa haft mikil og djúpstæð áhrif á starfsfólk og nemendur háskólans. Við hörmum að málið hafi ratað í fjölmiðla. Stjórnin er meðvituð um hvaða áhrif opinber umfjöllun um málið getur haft á þá sem telja tilefni til að leita til siðanefndar með álitaefni. Stjórnendur, starfsfólk og nemendur innan skólans og utan, þurfa að geta leitað til siðanefndar eða verið þar til umfjöllunar án ótta. Því telur stjórn rétt að hefja skoðun á ferlum og siðareglum með það að leiðarljósi að tryggja að ferlar séu skýrir, að skilningur ríki um þá, og um leið að siðanefnd hafi vinnufrið. Starfsemi siðanefnda er hluti af innra gæðaeftirliti háskóla, sem kveðið er á um í lögum. Alkunna er að eftirlit með gæðum náms, kennslu og rannsókna er samofið starfsemi háskóla, enda eiga nemendur og samfélagið allt að geta treyst störfum háskólanna. Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför, enda eru slík mál ekki gerð opinber af hálfu háskóla. Háskólinn á Bifröst hefur enga heimild til að reka siðarnefndarmál opinberlega. Viðbrögð Háskólans á Bifröst við umfjöllun í fjölmiðlum síðustu vikna verða því að skoðast í því ljósi. Eins og fram hefur komið tekur nú við sáttaferli sem er á forræði stjórnar. Við ætlum að taka það föstum tökum og gerum okkur grein fyrir hversu mikilvægt er að ná sáttum innan háskólans. Við vinnum nú að því að finna aðila sem nýtur trausts til að leiða sáttaferlið með þátttöku allra starfsmanna. Stjórnin óskaði m.a. eftir tillögum frá Félagi akademískra starfsmanna Bifrastar. Stjórnin vill þakka ykkur, starfsfólki og nemendum, það æðruleysi og þá biðlund sem þið hafið sýnt í þessu máli. Við vinnum öll að sama markmiði og nú þarf að endurnýja traust innan háskólans.“
Háskólar Deilur í Háskólanum á Bifröst Gervigreind Höfundar- og hugverkaréttur Skóla- og menntamál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin Sjá meira