Vel heppnaðir Stjörnuleikar á Selfossi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 10. febrúar 2026 20:15 Stjörnuleikarnir á Selfossi tókust einstaklega vel um helgina. Magnús Hlynur Hreiðarsson Stjörnuleikar fóru fram á Selfossi um helgina, sem var íþróttaskemmtun fyrir börn með sér og stuðningsþarfir. Leikarnir tókust einstaklega vel en þeir fóru fram í íþróttahúsi Vallaskóla.
Boðið var upp á kynningu á nokkrum íþróttagreinum á leikunum og svo voru börnin og unglingarnir að prófa sig áfram í ýmsum íþróttagreinum og leika sér saman eða með foreldrum sínum. „Þetta eru svona leikar, sem við erum að fara með vítt og breitt um landið. Opna íþróttahús á laugardagsmorgnum og leyfa fjölskyldum fatlaðra barna að koma og leika sér,” segir Valdimar Gunnarsson, verkefnisstjóri „Allir með“ „Við leyfum íþróttunum í umhverfinu að koma og kynna sitt starf og síðan fyllum við svolítið upp í með leik og skemmtun, sem við gerum með,” segir Thelma Dögg Grétarsdóttir, tilvonandi verkefnisstjóri „Allir með“. Valdimar Gunnarsson, verkefnisstjóri „Allir með“ og Thelma Dögg Grétarsdóttir, tilvonandi verkefnisstjóri „Allir með“Magnús Hlynur Hreiðarsson „Það er bara keila og babidon og blak og krulla og boccia og alls konar kastleikir og bara fyrst og fremst að hafa gaman, þetta snýst um að allir hafi gaman og allir séu með,” segir Ása Björg Þórhallsdóttir, kennari og þjálfari á Selfossi. „Og það er svo mikilvægt einmitt í verkefninu „Allir með“ að fólk hugsi þá að það megi allir vera með. Þetta er ekki fyrir ákveðna hópa, þú þarft ekki að vera með ákveðna fötlun,” segir Rakel Magnúsdóttir, svæðisfulltrúi íþróttahéraða á Suðurlandi. Frá hægri, Ása Björg Þórhallsdóttir, kennari og þjálfari, María Sigurjónsdóttir, lyftingakona og Rakel Magnúsdóttir, svæðisfulltrúi íþróttahéraða á Suðurlandi, sem voru allar hæstánægðar með Stjörnuleikana.Magnús Hlynur Hreiðarsson Stelpurnar voru ánægðar með daginn. „Við héldum að það myndi bara kannski koma einn, já, þannig að við erum ánægðar með mætinguna,” segir María Sigurjónsdóttir, lyftingakona sem var alsæl með leikana. Sóli lukkudýr mætti á staðinn og mikið af krökkum fékk mynd af sér með honum. Valdís Hrönn var líka mjög ánægð með Stjörnuleikana en hún æfir m.a. í íþróttahúsi Vallaskóla. „Við erum að æfa hérna boccia þannig að það er alltaf hérna mikið fjör og gleði, já og við hvetjum alla til að koma og vera með,” segir Valdís Hrönn. Leikarnir fóru fram laugardaginn 7. febrúar.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Árborg Íþróttir barna Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira