Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 10. febrúar 2026 08:23 Thomas Massie og Ro Khanna fengu að sjá skjölin óritskoðuð í gær. Þeir fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á aðeins tveimur klukkutímum. Getty/Alex Wong Fulltrúadeildarþingmennirnir Thomas Massie, Repúblikani, og Ro Khanna, Demókrati, fóru saman í gær og fengu að sjá Epstein-skjölin óritskoðuð. Þeir segja að á tveimur klukkustundum hafi þeir fundið að minnsta kosti sex nöfn manna sem kunna að hafa brotið af sér.
Að sögn þingmannanna er einn hásettur embættismaður erlends ríkis og annar vel þekktur einstaklingur. Massie, sem hefur áður hótað því að uppljóstra um nöfn mannanna ef dómsmálaráðuneytið rannsakar málið ekki frekar, segist ekki munu gera það í bili. Ráðuneytið eigi að fá tíma til að fara yfir málið og „leiðrétta mistök sín“. Athygli hefur vakið að mörg nöfn og netföng mögulegra samverkamanna voru útmáð með svörtu áður en nýjasti skammtur Epstein-skjalanna var birtur opinberlega á dögunum. Dómsmálaráðuneytið hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að ganga of langt í ritskoðun sinni í sumum tilvikum en skilja nöfn og persónuupplýsingar þolanda eftir óbreytt á sumum stöðum. Massie greindi frá því eftir að hann og Khanna skoðuðu skjölin í gær að einn umtalaðasti tölvupósturinn til Epstein, þar sem sendandinn þakkaði kynferðisbrotamanninum fyrir „skemmtilegt kvöld“ og sagði að „litlasta stelpan hans hefði verið svolítið óþekk“, hefði verið sendur af konu. Það liggi ekki fyrir hvort umrædd kona sé mögulegt fórnarlamb eða ekki. Vitað er um að minnsta kosti eina konu sem tók þátt í misnotkun Epstein á stúlkum undir lögaldri en það er Ghislaine Maxwell, sem nú afplánar 20 ára fangelsisdóm vegna málsins.
Bandaríkin Mál Jeffrey Epstein Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira