Af hverju þarf ríkið að selja mér vínið? Sveinn Rúnar Einarsson skrifar 11. febrúar 2026 10:00 Í dag þarf fólk á Íslandi ekki lengur að versla áfengi hjá ríkinu. Á síðustu árum hafa netverslanir með áfengi sprottið upp og sótt hratt í sig veðrið og eru nú orðnar á þriðja tug talsins. Verslanir eins og Sante, Smáríkið og fleiri bjóða þegar upp á þjónustu sem margir neytendur nýta sér.Þrátt fyrir þessa þróun heldur ríkið áfram rekstri ÁTVR og reynir að halda í kerfi sem á sífellt erfiðara með að réttlæta tilvist sína. Ríkisverslanirnar standa ekki lengur einar á markaðnum og erfitt er að halda því fram að þær séu samkeppnishæf lausn í heimi þar sem fólk er vant hraðri og þægilegri þjónustu.Þetta vekur upp spurningu: Af hverju þarf ríkið enn í dag að vera milliliður þegar fullorðið fólk kaupir löglega vöru?Ég hef sjálfur séð þessa þróun frá fyrstu hendi. Ég byrjaði að vinna í veitingageiranum um árið 2004 og síðan þá hefur mikið breyst. Vöruúrval er orðið fjölbreyttara, barir og veitingastaðir faglegri og kunnátta starfsfólks hefur aukist verulega. Samhliða þessu hafa drykkjuvenjur fólks líka breyst. Fólk er farið að velja gæði fram yfir magn og sýnir meiri áhuga á því hvað það er að drekka, hvort sem um er að ræða vín, bjór eða kokteila.Áfengissala hér á landi er þó enn föst í kerfi sem mótaðist á allt öðrum tíma, þegar talið var eðlilegt að stjórnvöld stýrðu hegðun fólks með hömlum og bönnum. En samfélagið hefur breyst. Fólk sér hvernig þetta er gert annars staðar og tekur í auknum mæli ábyrgð á eigin vali og neyslu. Samt heldur ríkið áfram að stjórna því hvar og hvernig fullorðið fólk kaupir sér áfengi.Frjálsari sala myndi ekki aðeins auka frelsi fólks, heldur einnig bæta úrval og menningu í kringum áfengi. Í mörgum löndum hefur frjálsari sala leitt til meiri áherslu á gæði og meðvitaðri neyslu í stað þess að fólk kaupi einfaldlega til að “redda sér fyrir helgina”.Staðan hér er því orðin mótsagnakennd. Netverslanir hafa nú þegar sýnt að eftirspurnin er til staðar, en þau fyrirtæki rekast samt á óljósan lagaramma sem virðist fremur ætlaður til að halda aftur af þróuninni en að laga reglurnar að breyttum tímum. Neytendur og fyrirtæki sitja á gráu svæði meðan kerfið hangir í fortíðinni.Á sama tíma vilja sumir ganga enn lengra í takmörkunum og jafnvel loka fyrir netverslun með áfengi. Margir hafa jafnvel talað fyrir því að draga verulega úr aðgengi eða jafnvel banna sölu í forvarnarskyni. Slík nálgun byggir á þeirri hugmynd að lausnin felist í sífellt meiri hömlum, í stað þess að treysta fólki til að taka ábyrgð og leggja áherslu á fræðslu.Sagan sýnir þó að bann og höft skapa sjaldnast heilbrigðari neyslu. Þegar áfengi er gert að einhverju sem þarf að fela og jafnvel banna, verður menningin síður ábyrg, en ekki öfugt.Fyrir mér snýst þetta líka um þá þróun sem ég hef sjálfur séð á undanförnum tveimur áratugum í veitingageiranum. Neyslumenningin hefur þroskast, fólk er meðvitaðra um gæði og uppruna þess sem það drekkur og nálgunin orðin ábyrgari en áður. Sú þróun kom ekki vegna meiri hafta, heldur vegna betra framboðs, aukinnar þekkingar og breyttra viðhorfa.Nú er timi til kominn að stíga skrefið til fulls. Ríkið ætti að hætta rekstri áfengisverslana og leyfa einkaaðilum að sjá alfarið um söluna, með skýrum reglum um aldurstakmörk og ábyrgð. Markaðurinn getur þá þróað þjónustu og úrval í takt við þarfir fólks í stað þess að ríkið stjórni vali fullorðinna einstaklinga.Í grunninn snýst þetta einfaldlega um traust. Treystum við fullorðnu fólki til að taka eigin ákvarðanir — eða ætlum við áfram að láta ríkið gera það fyrir okkur? Höfundur er þjónn og stemningsmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Áfengi Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar