Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. febrúar 2026 06:29 Þingmennirnir Thomas Massie og Ro Khanna eiga stóran þátt í því að meiri upplýsingar varðandi Epstein eru að koma upp úr kafinu. Getty/Tom Williams Ro Khanna, fulltrúadeildarþingmaður Demókrataflokksins, nafngreindi sex mögulega samverkamenn Jeffrey Epstein á þingfundi í gær, eftir að hann og Thomas Massie, þingmaður Repúblikanaflokksins, fengu að sjá hluta Epstein-skjalanna óritskoðuð í dómsmálaráðuneytinu.
Meðal sexmenninganna eru Leslie Wexner, eigandi fyrirtækja á borð við Victoria's Secret, Abercrombie & Fitch and Bath & Body Works, auðmaðurinn Sultan Ahmed bin Sulayem frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum, og fjórir aðrir menn að nafni Nicola Caputo, Salvatore Nuara, Zurab Mikeladze og Leonic Leonov. Wexner var góðvinur Epstein, sem höndlaði með fjárfestingar auðmannsins í mörg ár. Hann hefur ekki verið ákærður fyrir nein brot í tengslum við Epstein en virðist hafa verið nefndur sem mögulegur samverkamaður af FBI. Sultan Ahmed bin Sulayem er forstjóri DP World, fjölþjóðlegs fyrirtækis með starfsemi í yfir 80 löndum og bróðir Mohammed Ben Sulayem, yfirmanns FIA, sem hefur meðal annars umsjón með Formúlu Eitt. Sultan Ahmed bin Sulayem virðist hafa átt í tölvupóstsamskiptum við Epstein um kynlíf og þá hefur Massie sagt að hann virðist vera viðtakandi tölvupóstsins sem Epstein sendi þar sem hann sagði: „Ég elskaði pyntingarmyndbandið“. Maður að nafni Nicola Caputo sat á Evrópuþinginu fyrir Ítalíu á árunum 2014 til 2019 en ekki hefur fengist staðfest að stjórnmálamaðurinn sé sá Nicola Caputo sem nefndur er í skjölunum. Ekkert er vitað um Nuara, Mikeladze né Leonov enn sem komið er.
Bandaríkin Mál Jeffrey Epstein Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðgangna til Eyja Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Sjá meira