Ólína fyllir í skarð Margrétar á Bifröst Kjartan Kjartansson skrifar 11. febrúar 2026 13:27 Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, deildarforseti við Háskólann á Bifröst og starfandi rektor. Vísir Forseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, hefur verið settur rektor í stað Margrétar Jónsdóttur Njarðvík sem sagði sér í vikunni. Ólína hefur verið staðgengill rektors undanfarin tvö ár.
Margrét greindi frá afsögn sinni í viðtali í Ríkisútvarpinu á mánudag. Afsögnin kom í kjölfar harðrar gagnrýni starfsmanna og nemenda í garð hennar og fleiri stjórnenda á Bifröst. Mál Margrétar, rannsóknarstjóra skólans og forseta viðskiptadeildar gegn þremur kennurum við skólann í vetur olli ekki síst úlfúð. Rektor bað siðanefnd að kanna hvort kennararnir hefðu verið ranglega skráðir meðhöfundar að greinum. Virðast stjórnendurnir meðal annars hafa notað gervigreindarforrit til að leggja mat á það. Siðanefndin hreinsaði starfsmennina af sök í síðustu viku. Stjórn háskólans sagðist ekki gera athugasemdir við störf Margrétar í kjölfarið. Sjálf lýsti Margrét niðurstöðunni sem þeirri bestu mögulegu. Einn starfsmannanna þriggja var rekinn í sömu viku og honum var sagt frá því að siðanefndin skoðaði framlag hans til vísindagreina í nóvember. Ástæðan var sögð trúnaðarbrestur vegna þess að hann kenndi áfanga við Háskólann á Akureyri. Ólína var meðal annars skólameistari við Menntaskólann á Ísafirði í hálfan áratug. „Starfsfólk og stjórn háskólans þakkar dr. Margréti Njarðvík fráfarandi rektor fyrir framlag hennar til háskólans á undanförnum árum og óskar henni velfarnaðar í framtíðinni,“ segir í tilkynningu frá Háskólanum á Bifröst í dag. Fréttin hefur verið uppfærð.
Deilur í Háskólanum á Bifröst Háskólar Tengdar fréttir Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Samskiptastjóri Háskólans á Bifröst segir í yfirlýsingu frá skólanum að verktakagreiðslur til fastráðinna starfsmanna eigi sér ekki stað við háskólann. Skólinn harmar að einstaka starfsmenn séu nafngreindir í umfjöllun RÚV um verktakagreiðslur og segir gögn tekin úr samhengi. 10. febrúar 2026 18:25 Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Nemendur og akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst saka stjórnendur skólans um að hafa beitt nemendur þrýstingi í því skyni að tryggja rektor skólans stuðning. Það sé aðför gegn tjáningarfrelsi nemenda og fari gegn siðareglum. Stjórnarmaður í FAB segir rektor vera búinn að „missa klefann“. 9. febrúar 2026 12:18 Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um átökin á Bifröst þar sem stór hluti kennaraliðs skólans og nemendur hafa gagnrýnt stjórnendur skólans harðlega. 9. febrúar 2026 11:33 Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Siðanefnd Háskólans á Bifröst hefur hreinsað þrjá starfsmenn af öllum ásökunum. Rektor skólans bað siðanefndina um að kanna hvort starfsmennirnir hefðu verið ranglega skráðir sem meðhöfundar að greinum. 6. febrúar 2026 15:26 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Sjá meira
Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Samskiptastjóri Háskólans á Bifröst segir í yfirlýsingu frá skólanum að verktakagreiðslur til fastráðinna starfsmanna eigi sér ekki stað við háskólann. Skólinn harmar að einstaka starfsmenn séu nafngreindir í umfjöllun RÚV um verktakagreiðslur og segir gögn tekin úr samhengi. 10. febrúar 2026 18:25
Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Nemendur og akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst saka stjórnendur skólans um að hafa beitt nemendur þrýstingi í því skyni að tryggja rektor skólans stuðning. Það sé aðför gegn tjáningarfrelsi nemenda og fari gegn siðareglum. Stjórnarmaður í FAB segir rektor vera búinn að „missa klefann“. 9. febrúar 2026 12:18
Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um átökin á Bifröst þar sem stór hluti kennaraliðs skólans og nemendur hafa gagnrýnt stjórnendur skólans harðlega. 9. febrúar 2026 11:33
Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Siðanefnd Háskólans á Bifröst hefur hreinsað þrjá starfsmenn af öllum ásökunum. Rektor skólans bað siðanefndina um að kanna hvort starfsmennirnir hefðu verið ranglega skráðir sem meðhöfundar að greinum. 6. febrúar 2026 15:26