Viðskipti erlent

Funda um stofnun inn­lendrar greiðslu­miðlunar

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Bretar hyggjast taka upp nýja greiðslumiðlun árið 2030.
Bretar hyggjast taka upp nýja greiðslumiðlun árið 2030. Getty/John Keeble

Stjórnendur banka og fjármálafyrirtækja á Bretlandseyjum munu funda á fimmtudaginn um stofnun nýrrar innlendrar stofnunar, sem myndi sjá um greiðslumiðlun í landinu ef vandamál koma upp með miðlun Visa og Mastercard.

Hugmyndin hefur verið uppi um nokkurra ára skeið en hótanir Donald Trump Bandaríkjaforseta eru sagðar hafa sannfært menn um mikilvægi innlendrar greiðslumiðlunarlausnar. Um það bil 95 prósent allra kortagreiðslna á Bretlandseyjum fara í gegnum fyrirtæki í eigu Visa og Mastercard.

„Ef Mastercard og Visa yrðu tekin úr sambandi myndi það senda okkur aftur til 1950, áður en kortagreiðslur tók yfir í breska hagkerfinu, þegar fyrirtæki reiddu sig alfarið á reiðufé,“ hefur Guardian eftir heimildarmanni. „Að sjálfsögðu þurfum við innlenda greiðslumiðlun.“

Aurore Lalucq, formaður efnahagsmálanefndar Evrópuþingsins, varaði við því á dögunum að Evrópuríkin reiddu sig alfarið á bandarískar greiðslulausnir. Trump gæti hreinlega slökkt á kerfinu.

Greiðslumiðlunin yrði samvinnuverkefni stjórnvalda og fjármálageirans en unnin í samstarfi við Visa og Mastercard. Meðal annarra fyrirtækja sem koma að verkefninu eru Barclay's, Santander UK, NatWest, Nationwide og Lloyds Banking Group. 

Stefnt er að því að taka kerfið í notkun árið 2030.

Hér má finna ítarlega umfjöllun Guardian um málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×