Útlit fyrir hríðarbyl á Suðurlandi Atli Ísleifsson skrifar 17. febrúar 2026 07:10 Frost verður þrjú til átján stig og kaldast inn til landsins. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur hægri norðanátt og dálitlum éljum norðanlands í dag. Spáð er hægt vaxandi austan- og norðaustanátt og mun þykkna upp vestanlands.
Gera má ráð fyrir 13 til 20 metrum á sekúndu og snjókomu sunnanlands undir kvöld. Er útlit fyrir hríðarbyl á Suðurlandi í nótt og framan af morgundegi. Frost verður þrjú til átján stig og kaldast inn til landsins. Frostlaust allra syðst í kvöld. „Bætir í vind norðanlands síðdegis á morgun með samfelldri snjókomu. Frostlaust allra syðst en annars frost 0 til 8 stig. Enn er nokkur óvissa um hvar staðsetning úrkomubakkana og er fólk hvatt til að fylgast vel með spám,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðlæg átt 5-13 m/s, en hvassari á stöku stað. Él um landið norðan- og vestanvert, en snjókoma suðaustanlands. Frost 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins. Á fimmtudag: Norðaustan 8-15 m/s norðvestantil en annars hægari norðlæg átt. Snjókoma eða él um landið norðanvert en annars þurrt að kalla. Hiti breytist lítið. Á föstudag: Norðaustan 5-15 m/s, hvassast norðvestantil og með austurströndinni. Él um landið norðanvert, en bjarviðri syðst. Dregur heldur úr frosti. Á laugardag: Austlæg átt, 3-10 m/s. Smáél fyrir norðan og austan en annars víða léttskýjað. Sums staðar frostlaust við sjóinn en kalt inn til landsins. Á sunnudag: Austan og norðaustan 8-15. Rigning, slydda eða snjókoma en úrkomulítið norðantil. Hiti víða 0 til 4 stig syðst, en annars vægt frost. Á mánudag: Útlit fyrir austlæga eða breytilega átt. Skýjað og dálítil úrkoma í flestum landshlutum. Allvíða frostlaust við ströndina en annars vægt frost.
Veður Færð á vegum Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira