Miðflokkurinn skarar fram úr í kjördæmi formannsins Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. febrúar 2026 11:22 Sigmundur Davíð er formaður Miðflokksins. Vísir/Einar Fylgi Miðflokksins dalar örlítið samkvæmt nýjasta þjóðarpúlsi Gallups og er Samfylkingin enn stærst. Þróunin er þó öfug í kjördæmi formanns Miðflokksins þar sem flokkurinn mælist með mesta fylgið.
Austurfrétt greinir frá niðurstöðunum. Þar kemur fram að fylgi Miðflokksins á landsvísu sé 21 prósent en það er 0,7 prósentum lægra en það mældist í síðasta þjóðarpúlsi Gallups. Þar mældist Samfylkingin með tæp 31 prósenta fylgi og helst stöðug í 31 prósenti. Í nýrri könnun Maskínu, sem fjallað var um í lok janúar, mældist Miðflokkurinn með 22,2 prósenta fylgi og Samfylkingin með 27 prósent. Aftur á móti er þróunin í Norðausturkjördæmi, kjördæmi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, öfug. Þar mælist Miðflokkurinn stærstur með 27,7 prósenta fylgi og bætir þar með við sig 2,6 prósentum. Aftur á móti tapar Samfylkingin 5,7 prósentum og mælist með 23,4 prósenta fylgi. Framsókn sækir í sig veðrið í kjördæminu og mælist með 14,4 prósenta fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn 13,6 prósent. Báðir flokkarnir bæta þar með við sig tæpum tveimur prósentum. Samkvæmt Austurfrétt er Sósíalistaflokkurinn hástökkvari milli mánaða í Norðausturkjördæmi. Hann bætir við sig 1,9 prósentustigum og mælist með 2,2 prósent. Fylgi Viðreisnar og Pírata er óbreytt en Flokkur fólksins tapar 1,4 prósentum. Vinstri grænir tapa einnig tæpu prósenti.
Skoðanakannanir Samfylkingin Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Sósíalistaflokkurinn Flokkur fólksins Vinstri græn Viðreisn Píratar Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Sjá meira