„Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Samúel Karl Ólason skrifar 19. febrúar 2026 15:52 Ghislane Maxwell og Jean-Luc Brunel á árum áður. Brunel mun hafa aðstoðað Epstein við að verða sér út um ungar stúlkur og konur um árabil. Getty Árið 2016 var hinn franski Jean-Luc Brunel, sem starfaði lengi við að finna fyrirsætur, í viðræðum við lögmenn fórnarlamba Jeffreys Epstein. Þær viðræður snerust um að hann segði saksóknurum í New York frá því sem hann vissi um meint mansal Epsteins.
Lögmaður Brunels sagði lögmönnum fórnarlambanna að Brunel hefði útvegað Epstein stúlkur og ætti ljósmyndir sem hægt yrði að nota í málaferlum gegn honum. Viðræðurnar voru komnar það langt að verið var að tala um dagsetningu þegar Brunel gæti gengið inn á skrifstofu saksóknaranna og það mögulega í skiptum fyrir friðhelgi gegn ákærum, samkvæmt frétt Wall Street Journal. Þar er vísað til bréfs sem er hluti af Epstein-skjölunum svokölluðu en þar segir að einn af „bestu vinum Epsteins, Jean Luc Brunel“, sem hafi hjálpað Epstein að verða sér úti um konur, vilji aðstoða saksóknara en óttist lögsókn. Um það leyti hættu lögmennirnir að ná í Brunel eða lögmann hans. Fyrirspurnum var ekki svarað og svo virtist sem hann hefði horfið af yfirborði jarðar um tíma. Samkvæmt WSJ hafði Epstein uppgötvað að Brunel ætti í viðræðum við lögmennina og sést það á tölvupósti sem hann sendi á Kathy Ruemmler, einn af sínum lögmönnum. Epstein skrifaði henni að Brunel væri á leið til saksóknara. Þá sagði Epstein að vinur Brunels hefði beðið sig um þrjár milljónir dala og ef þær fengjust myndi Brunel ekki leysa frá skjóðunni. Sjá einnig: „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Ekki er ljóst af hverju Brunel ræddi að endingu ekki við saksóknara en Epstein gekk laus í þrjú ár til viðbótar, þar til hann var handtekinn árið 2019. Brunel sjálfur var ekki heldur handtekinn eða rannsakaður frekar. Í samtali við WSJ segir einn lögmanna fórnarlamba Epsteins sem áttu í viðræðum við Frakkann að gögn þeirra bendi til þess að rúmlega fimmtíu konur hafi lent í mansali á milli 2016 og 2019. Hjálpaði Brunel að stofna fyrirsætuskrifstofu Brunel er sagður hafa spilað stóra rullu í mansali Epsteins og flutningi hans á stúlkum og ungum konum. Hann mun hafa notað stöðu sína til að finna erlendar konur og útvegað þeim vegabréfsáritun í skjóli fyrirsætustarfa sem voru ekki raunveruleg. Hann ferðaðist ítrekað með einkaþotu Epsteins, heimsótti eyju hans og skiptist á fjölda tölvupósta við hann. Árið 1988 var fjallað um Brunel í fréttaskýringaþættinum 60 Minutes þar sem fyrirsætur sögðu Brunel hafa byrlað þeim og krafist þess að þær hefðu mök við hann og vini hans í skiptum fyrir vinnu sem fyrirsætur. Ein kona sagði frá því í viðtali að Brunel hefði byrlað fyrir henni og nauðgað henni. Brunel hafnaði öllum ásökununum og var aldrei kærður eða ákærður. Í upphafi fyrsta áratugs aldarinnar urðu Brunel og Epstein vinir en árið 2005 sendi auðjöfurinn Brunel milljón dala til að hjálpa honum að koma á laggirnar eigin fyrirsætuskrifstofu sem var með starfsemi í New York og Miami. Nafn fyrirtækisins var E=MC² en E-ið táknaði Epstein. Epstein-skjölin sýna samkvæmt frétt WSJ fram á að Epstein notaði þetta fyrirtæki til að verða sér úti um stúlkur og konur og greiða þeim peninga. Eftir að Epstein var dæmdur til fangavistar í Flórída árið 2008, þegar hann gerði mjög svo umdeilt samkomulag og játaði að hafa haft mök við stúlku undir lögaldri, heimsótti Brunel hann nærri því sjötíu sinnum í fangelsi. Brunel var handtekinn í Frakklandi árið 2020 og var hann þá til rannsóknar vegna ásakana um nauðgun og um að hafa útvegað Epstein ungar konur. Hann dó í fangelsi árið 2022. Sneri sér að Austur-Evrópu eftir fangelsisvist Epstein hafði fyrst verið handtekinn árið 2006. Hann var þá sakaður um að hafa brotið á fjölda stúlkna og ungra kvenna yfir nokkurra ára tímabil. Til stóð að ákæra hann í 32 liðum og þá meðal annars fyrir að hóta sextán ára stúlku. Sjá einnig: Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Eftir handtökuna og afplánunina einbeitti Epstein sér að því að flytja ungar konur frá Evrópu og aðallega Rússlandi til Bandaríkjanna, á þeim grunni að þær væru fyrirsætur. Á þessum konum braut hann í skjóli þess að þær voru háðar honum upp á bæði peninga og landvistarleyfi í Bandaríkjunum. Þá þrýsti hann einnig á þær og fékk til að segja sér frá samneyti þeirra með öðrum mönnum.
Mál Jeffrey Epstein Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Ungmenni réðust að konu með höggum og spörkum í Mjóddinni Innlent Framkvæmdastjóri Hopp vill ráða sófakappana Innlent Rúmeninn náði 160 milljónum króna af Arion banka Innlent Stór hópur foreldra taki skólaskyldu ekki alvarlega Innlent Ók gegn rauðu ljósi þegar kona á níræðisaldri lést Innlent Borgarfulltrúar til rannsóknar vegna gagnaleka Innlent Taldi sig mega fara með fimmtán ára stúlku um borð Innlent Hafi svikið tugi milljóna úr íslenskum banka Innlent Keypti bíl fyrir peningana og flúði land með Norrænu Innlent Ungmenni á „krossurum“ elt heim með dróna Innlent Fleiri fréttir Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum „Gjörsamlega óásættanlegt“ Frakki sýndi veirueinkenni og allir fimm skikkaðir í einangrun Fallhlífastökkvarar aðstoða með hantasmit á afskekktri eyju „Lífið heldur bara áfram sinn vanagang“ Fyrrverandi ráðherra vill þvinga fram leiðtogakjör Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Sjá meira