Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Smári Jökull Jónsson skrifar 20. febrúar 2026 14:13 Oddný Arnarsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu, segir að verulega hafi dregið úr fjármagni til neytendamarkaðssetningar. Vísir/Vilhelm Viðvarandi markaðssetning stjórnvalda í ferðaþjónustu hefur ekki verið til staðar frá árinu 2023 og fjárframlög minnkuð, segir fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu. Setja þurfi í samhengi hvernig ferðaþjónusta hér á landi hefur breyst á síðustu árum.
Hjörtur Atli Guðmundsson, ráðgjafi í ferðaþjónustu, birti pistil á dögunum þar sem hann segir Ísland hafa sofið á verðinum í markaðssetningu. Einn stærsti ferðasöluaðili heims sýnir til dæmis Tromsö í Noregi sem fyrsta áfangastað hjá þeim ferðamönnum sem leita að norðurljósaferðum en Icelandair tilkynnti nýverið að félagið muni hefja flug til Tromsö í október. Oddný Arnarsdóttir hjá Íslandsstofu segir verulega hafa dregið úr fjármagni til neytendamarkaðssetningar. Aðspurð hvort stjórnvöld hafi dregið lappirnar segir Oddný viðvarandi markaðssetningu ekki hafa verið til staðar frá 2023, eftir að meira en tveimur milljörðum var varið í markaðssetningu tvö ár þar á undan.„Síðan þá hafa þetta verið samtals – sem sagt á þremur árum – í kringum 350 milljónir í heildina í neytendamarkaðssetningu. Þetta hefur að sjálfsögðu svona áhrif en við erum í mjög góðu og virku samtali við stjórnvöld,“ segir Oddný. Góðu starfi hafi verið sinnt á viðskiptatengslamarkaði en ekki hefur orðið aukning ferðamanna frá árinu 2018. Íslandsstofa horfi ekki bara í fjölda ferðamanna heldur hvað þeir skilji eftir sig. „Við þurfum að muna að hér vorum við náttúrulega, árið 2010 vorum við áfangastaður þar sem að fólk heimsótti Ísland bara yfir sirka þrjá mánuði. Í dag erum við allan ársins hring hér með ferðaþjónustu allt landið um kring.“ Byggja upp áhuga á eftirspurnarmörkuðum Hlutverk Íslandsstofu sé að byggja upp áhuga á eftirspurnarmörkuðum og markmiðið að minnka árstíðarsveiflur. „Við sjáum til dæmis að við fórum í aðgerð núna undir lok síðasta árs þar sem við vorum með svona markvissa markaðsvinnu í norðurljósaherferðinni í Bretlandi, The Auroras, þar sem við vorum með auglýsingar, PR og samfélagsmiðla með skýran fókus á vetur á Íslandi. Þessi herferð náði til tæplega 28 milljón einstaklinga á mjög skömmum tíma,“ sagði Oddný Arnarsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu.
Ferðaþjónusta Fréttir af flugi Auglýsinga- og markaðsmál Keflavíkurflugvöllur Efnahagsmál Tengdar fréttir Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Ráðgjafi í ferðaþjónustu segir ákvörðun Icelandair um að fljúga til Trömsö í Noregi til marks um það hvernig Íslendingar hafi sofnað á verðinum, á sama tíma og Norðmenn hafi vaknað. Félagið leggi lóð á vogarskálar Norðmanna en viðbragð þess sé tilkomið vegna sinnuleysis íslenskra stjórnvalda. 19. febrúar 2026 06:45 Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Viðskipti erlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Sjá meira
Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Ráðgjafi í ferðaþjónustu segir ákvörðun Icelandair um að fljúga til Trömsö í Noregi til marks um það hvernig Íslendingar hafi sofnað á verðinum, á sama tíma og Norðmenn hafi vaknað. Félagið leggi lóð á vogarskálar Norðmanna en viðbragð þess sé tilkomið vegna sinnuleysis íslenskra stjórnvalda. 19. febrúar 2026 06:45