Loks slitnaði rófan! Hvað gengur Viðskiptaráði til? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar 20. febrúar 2026 19:33 Hugleiðingar um fullyrðingar Viðskiptaráðs um veikindarétt opinberra starfsmanna Umræðan um veikindarétt opinberra starfsmanna hefur undanfarna daga minnt á þjóðsöguna um bræðurna Einbjörn, Tvíbjörn og Þríbjörn og kálfinn sem sökk í dýið svo einungis rófan stóð upp úr. Í sögunni er enginn viljugur til að horfast í augu við rót vandans eða verkefnið sem við blasir, heldur fer öll orkan í að toga í rófuna í stað þess að leggja á sig vinnuna við að losa um kálfinn sjálfan. Enda fór eins og viðbúið var; – loks slitnaði rófan! Þó ekki hafi farið neinum sögum af afdrifum kálfsins þá getum við öll ímyndað okkur hver hans endalok urðu. Í umræðunni um veikindaréttinn togar Viðskiptaráð látlaust í rófuna og virðist staðráðið í að leiða hjá sér hvað þurfi til að bjarga blessuðum kálfinum. Viðskiptaráð klifar á því að veikindaréttur opinberra starfsmanna sé óhóflegur og að draga ætti úr honum með öllum ráðum. Ráðið segir rétt opinberra starfsmanna til launa í veikindum „allt að sjöfaldan“ á við þann sem tíðkast á almennum markaði. Sömuleiðis að veikindafjarvistir séu tvöfalt algengari á opinbera markaðnum en þeim almenna og að þær kosti hið opinbera tugmilljarða króna á ári. Þetta hljómar dramatískt og það er eflaust markmiðið. En þegar gögnin eru skoðuð, og aðferðafræðin rýnd, kemur í ljós að um er að ræða bæði vanhugsun og rangfærslur eins og bent er á í grein formanns BSRB á visir.is. Hvers vegna eru tölurnar svona misvísandi? Í fyrsta lagi eru veikindadagar taldir með ólíkum hætti eftir mörkuðum. Á opinbera markaðnum eru taldir almanaksdagar, en á þeim almenna einungis virkir vinnudagar. Til að fá marktækan samanburð þyrfti því að draga frá alla laugardaga og sunnudaga, sem teljast til veikindadaga hjá starfsfólki opinbera markaðarins. Þetta eitt gerir samanburðinn beinlínis villandi. Í öðru lagi er veikindaréttur á almennum markaði ekki bara rétturinn til launa í veikindum sem vinnuveitanda ber að greiða, heldur nær hann einnig til sjúkrasjóðakerfis sem bætir við 7–12 mánuðum hjá mörgum stéttum. Heildarrétturinn er því oft sambærilegur milli markaða. Í þriðja lagi er það undarleg vegferð hjá Viðskiptaráði að nota tölur Hagstofunnar frá 2020, fyrsta ári heimsfaraldurs, í áróðri sínum. Það blasir við að slíkt leiðir til rangra ályktana. Kerfislægt álag en ekki einstaklingsbundinn brestur Þegar litið er á nýjustu greiningu BHM um tíðni veikindaforfalla og samanburð við Norðurlöndin blasir við gjörólík mynd en sú sem Viðskiptaráð teiknar upp. Þar kemur fram að aukin veikindaforföll síðustu ára séu fyrst og fremst til komin vegna streitu, aukins álags, manneklu og flóknara vinnuumhverfis – ekki síst á meðal háskólamenntaðra sérfræðistétta og kvenna í framlínu heilbrigðis- og velferðarþjónustunnar. Þessi þróun er ekki séríslensk; hún sést skýrt í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Íslensk gögn benda til að lausn vandans sé að leita í sjálfum grunnkerfum samfélagsins, sem sannanlega glíma við skipulagsvanda, manneklu og vaxandi kröfur til þjónustu. Aukin veikindaforföll og eftirspurn eftir starfsendurhæfingu að loknum veikindum endurspeglar þennan vanda. Starfsfólkið, sem heldur uppi mennta-, heilbrigðis- og velferðarkerfunum okkar, er í beinni snertingu við þau sem eiga rétt á þjónustunni, hefur ekki undan. Því er í hæsta máta ósæmilegt af Viðskiptaráði að dylgja stöðugt um misnotkun réttinda opinberra starfsmanna. Nær væri að aðilar vinnumarkaðarins sameinuðust um að afla nauðsynlegra gagna til að geta dregið ályktanir sem gagnast geta vinnumarkaðnum í heild og þar með samfélagsþjónustunni sem við höfum komið okkur saman um að hið opinbera veiti. Það sem vantar eru gögn, samræmi og ábyrgð Íslenskan vinnumarkað skortir samræmd gögn um veikindaforföll. T.d. heldur ríkið ekki miðlægan gagnagrunn um veikindafjarvistir, ólíkt hinum Norðurlöndunum. Því er hætta á að samanburður byggist á ófullkomnum eða ósambærilegum gögnum. Þetta er vandamál sem bæði vinnustaðir, stéttarfélög og þjónustuaðilar glíma við og hafa bent á. Það leiðir okkur aftur til sögunnar sem byrjað var á hér í upphafi. Þegar enginn vill taka ábyrgð á gagnasöfnuninni rís upp gamla sagan um Einbjörn, Tvíbjörn og Þríbjörn, sem allir toguðu í rófuna, en hirtu ekkert um sjálfan kálfinn. Áttum okkur á því að orkan sem fer í að toga í rófuna gerir ekkert gagn. Það er skynsamlegra að við beinum sjónum að rót vandans og því sem gera þarf til að leysa hann. Það væri gagnlegt ef Viðskiptaráð áttaði sig á þessu og gengist við ábyrgð sinni á því að almenn umræða um margþætt úrlausnarefni fari fram með upplýstum og sanngjörnum hætti. Gagnadrifin umræða í stað sleggjudóma Við sem sinnum hagsmunagæslu fyrir launafólk hvar sem er á vinnumarkaði, treystum því að stjórnvöld séu að hlusta og höfum vonir um að í vændum sé átak í skráningu og greiningu veikindaforfalla á opinbera markaðnum. Þannig teljum við að ákallinu um bætta gagnaöflun verði best svarað. Ef samfélagið ætlar að draga úr veikindaforföllum og styðja fólk til virkrar starfsendurhæfingar þarf umræðan að byggjast á: vönduðum og sambærilegum gögnum, samræmdri skráningu, greiningu á kerfislægum ástæðum, og sanngjörnum samanburði milli markaða. Sleggjudómar og óvönduð tölfræði leiða okkur ekkert áfram. Það sem við þurfum er gagnadrifin umræða byggð á raunverulegum samanburði en alls ekki á því að draga upp allt að 5 ára gamlar tölur og láta eins og þær segi okkur eitthvað um stöðuna eins og hún er í dag. Höfundur er formaður BHM. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Halldórsdóttir Stéttarfélög Rekstur hins opinbera Kjaramál Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun