Skjaldborg um sjöfaldan veikindarétt Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar 22. febrúar 2026 07:02 Viðskiptaráð birti í vikunni úttekt á veikindarétti opinberra starfsmanna. Þar er ljósi varpað á þá staðreynd að veikindaréttur hjá hinu opinbera er allt að sjöfaldur miðað við einkageirann. Samhliða þessum ríkari réttindum eru veikindafjarvistir tvöfalt algengari hjá hinu opinbera. Ráðið áætlar að beinn kostnaður ríkis og sveitarfélaga vegna veikinda umfram það sem gerist í einkageiranum nemi 19 milljörðum króna á ári. Viðbrögðin við úttektinni létu ekki á sér standa. Formaður BSRB birti meðal annars grein hér á Vísi undir yfirskriftinni „Rangfærslur Viðskiptaráðs“ þar sem hún sakar okkur um villandi samanburð. Rétt er að bregðast þeirri gagnrýni. Sjö veikindadagar á móti einum Formaður BSRB segir Viðskiptaráð horfa fram hjá mismunandi talningu veikindadaga, þar sem almanaksdagar séu taldir hjá hinu opinbera en vinnudagar á einkamarkaði. Sú fullyrðing stenst ekki. Í úttektinni er sérstaklega leiðrétt fyrir þessum mun til að tryggja réttan samanburð. Sem dæmi má nefna að eftir sex mánuði í starfi á opinber starfsmaður rétt á 119 almanaksdögum í launuðu veikindaleyfi. Starfsmaður í einkageira á rétt á 12 virkum dögum, sem umreiknast yfir í 17 almanaksdaga þegar helgum og rauðum dögum er bætt við. Þegar bæði réttindi eru mæld með sama hætti er munurinn sjöfaldur. Hærra veikindahlutfall óháð heimsfaraldri Formaður BSRB gagnrýnir einnig að notuð séu gögn frá 2020, þegar heimsfaraldurinn stóð sem hæst. Það ár nam veikindahlutfall 6,1% greiddra vinnustunda hjá hinu opinbera og 3,0% í einkageiranum. Ástæðan fyrir valinu er einföld: það eru nýjustu opinberu gögn sem eru tiltæk fyrir slíkan samanburð. Óháð áravali er veikindahlutfall hjá hinu opinbera langtum hærra en á einkamarkaði. Nýrri tölur benda ekki til þess að 2020 hafi verið frávik eins og formaðurinn heldur fram. Veikindahlutfall hjá Reykjavíkurborg var 7,4% árið 2025. Og árið 2024 var það 7,5% í Kópavogi, 7,9% í Hafnarfirði og 8,0% á Seltjarnarnesi. Fullyrðing okkar um tvöfalt hærra veikindahlutfall hjá hinu opinbera telst því varfærin frekar en ofmetin. Það vinna ekki allir á gjörgæslu Formaður BSRB leitast við að skýra hærra veikindahlutfall opinberra starfsmanna með vísan til álags og framlínustarfa og dregur upp þá mynd að meirihluti opinberra starfsmanna starfi í vaktavinnu á bráðamóttökum. Sú mynd er ekki í samræmi við staðreyndir. Samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar starfa um 13.000 opinberir starfsmenn við stjórnsýslu – í hefðbundnum skrifstofustörfum sem eru að meginstefnu sambærileg störfum á einkamarkaði hvað varðar vinnufyrirkomulag og álag. Hærra veikindahlutfall hjá þessum hópi verður ekki skýrt með vísan til aðstæðna í heilbrigðisþjónustu. Gögn frá Reykjavíkurborg sýna til dæmis að veikindahlutfall á umhverfis- og skipulagssviði nam 7,8% árið 2025 – hærra en á velferðarsviði borgarinnar og langt umfram það sem tíðkast í einkageiranum. Engin málefnaleg rök hafa verið færð fyrir því að skrifstofumaður hjá hinu opinbera njóti sjöfalt ríkari veikindaréttar en skrifstofumaður í einkageiranum. Slíkan mun er hvorki hægt að réttlæta með vísunum til heimsfaraldurs né framlínustarfa. Sjúkrasjóður er neyðarúrræði Formaður BSRB heldur því loks fram að opinberir starfsmenn og starfsmenn í einkageiranum séu í raun jafnsettir vegna tilvistar sjúkrasjóða. Sú niðurstaða stenst ekki skoðun. Grundvallarmunur er á lög- og kjarasamningsbundnum rétti til fullra launa frá vinnuveitanda í veikindum og greiðslum úr sjúkrasjóði sem taka við eftir að launagreiðslur stöðvast. Veikindaréttur hjá atvinnurekanda ávinnst með starfsaldri og veitir launþega full laun ásamt áframhaldandi ávinnslu réttinda, svo sem lífeyris og orlofs. Greiðslur úr sjúkrasjóðum taka hins vegar við þegar veikindaréttur hjá atvinnurekanda er fullnýttur eða ráðningarsambandi lokið. Þær fela ekki í sér sjálfstæðan veikindarétt heldur tímabundna tekjutryggingu sem er háð samþykktum sjóðsins og mati á skilyrðum. Greiðslurnar nema að jafnaði aðeins hluta fyrri tekna, eru bundnar hámarksfjárhæðum og veittar í takmarkaðan tíma, án þess að séreignar- eða lífeyrissjóðsréttindi ávinnist samhliða. Á meðan opinber starfsmaður heldur fullum launum og áframhaldandi réttindaávinnslu í veikindum ber almennur launþegi sjálfur áhættuna af skerðingum, hámarksgreiðslum og umsóknum í kerfi sem stendur utan ráðningarsambandsins. Að halda því fram að þessir hópar séu jafnsettir leggur gjörólík fyrirbæri að jöfnu. Jöfnum réttindin Hátt veikindahlutfall hjá hinu opinbera er sameiginlegt viðfangsefni alls samfélagsins. Og margfaldur réttindamunur á vinnumarkaði stenst ekki jafnræðissjónarmið. Tillaga Viðskiptaráðs er skýr: veikindaréttur opinberra starfsmanna verði færður til jafns við réttindi starfsfólks á einkamarkaði. Slík breyting myndi skýra verkaskiptingu milli atvinnurekenda og velferðarkerfisins og tryggja að þeir sem glíma við langvarandi veikindi fái fyrr aðgang að sérhæfðum úrræðum og markvissri endurhæfingu sem styður við endurkomu á vinnumarkað. Höfundur er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rekstur hins opinbera Kjaramál Björn Brynjúlfur Björnsson Vinnumarkaður Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun