Býst við að samningar náist fljótlega og auglýsir eftir starfsfólki Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 22. febrúar 2026 13:31 Kristján Jón Jónatansson framkvæmdastjóri Klíníkurinnar býst við að samstarfssamningur náist á næstu dögum við heilbrigðisyfirvöld um móttöku sjúklinga sem bíða eftir hjúkrunarrými á Landspítalanum. Vísir/Bjarni Stjórnendur læknamiðstöðvarinnar Klíníkurinnar búast við að samstarfssamningur um móttöku sjúklinga frá Landspítalanum náist við heilbrigðisyfirvöld á næstu dögum. Framkvæmdastjóri segir að þegar hafi verið auglýst eftir heilbrigðisstarfsfólki. Hann finni fyrir miklum áhuga á verkefninu.
Neyðarástand hefur ríkt á Landspítalanum vegna svokallaðs fráflæðisvanda í næstum eitt og hálft ár. Síðustu vikur hafa sjúklingar sem liggja inn á spítalanum og bíða eftir hjúkrunarrými verið allt að 120 talsins. Fréttastofa greindi frá því í vikunni að heilbrigðisráðuneytið, Landspítali og einkarekna læknamiðstöðin Klíníkin ættu í viðræðum um hvort sú síðastnefnda geti tekið við sjúklingum frá Landspítala vegna neyðarástands sem þar ríkir. Samningar á næsta leiti Samkvæmt upplýsingum frá Kristjáni Jóni Jónatanssyni framkvæmdastjóra Klíníkurinnar miðar viðræðum við forsvarsmenn heibrigðisráðuneytis og Landspítala vel. „Klíníkin hefur nokkra möguleika til að létta undir núverandi ástandi, hvort sem um er að ræða að útvega legurými til lengri tíma eða að styðja við skurðstofustarfsemi Landspítala og þar með draga úr legurýmisþörf spítalans og stytta jafnframt biðtíma. Líklegasta leiðin er sambland þessara úrræða,“ segir Kristján í svari til fréttastofu. Hann býst við að viðræðum ljúki á næstunni. „Framhaldsviðræður eru fyrirhugaðar strax eftir helgi og að svo stöddu bendir ekkert til annars en að unnt verði að ljúka viðræðum á næstu dögum,“ segir Kristján. Klíníkin sé þegar byrjuð að reyna að útvega starfsfólk. „Ljóst er að þörf verður á auknu heilbrigðisstarfsfólki til að sinna verkefninu og hefur þegar verið hafist handa við að auglýsa eftir því. Við finnum fyrir miklum áhuga, hluti starfsfólks er þegar tiltækur á meðan aðrir þurfa lengri fyrirvara áður en þeir geta hafið störf,“ segir í svari Kristjáns.
Landspítalinn Heilbrigðismál Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Fleiri fréttir Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Sjá meira