Vonn þakkar lækni fyrir að vera enn með tvo fætur Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. febrúar 2026 16:41 Lindsey Vonn var í hættu á að missa löppina. Lindsey Vonn er laus af spítala og þakkar lækninum Tom Hackett fyrir að bjarga sér frá aflimun. Tvísýnt var hvort hún myndi halda fætinum eftir að hafa fótbrotnað illa á Vetrarólympíuleikunum.
Vonn lenti í harkalegu slysi í fyrstu ferð brunkeppninnar. Hún mölbraut á sér sköflunginn og varð fyrir ýmsum öðrum áverkum á fætinum. Svo slæmt var ástandið, að hennar sögn, að blóðið flæddi óvenjulega í löppina. Vegna þess að álagið var svo mikið á sama stað. Þá þurfti að meta hvort hægt væri að bjarga fótinum eða hvort þyrfti að aflima hana. „Allir vöðvarnir, taugarnar og sinarnar voru í raun að deyja. En læknirinn Tom Hackett bjargaði mér og kom í veg fyrir að það þyrfti að aflima löppina“ sagði Vonn í færslu á Instagram í dag. Vonn þakkaði fyrir það að Hackett hefði verið á svæðinu. Skurðlæknirinn var í viðbragðsstöðu vegna þess að hún var nýbúin að slíta krossband. Ljóst er að Vonn á langa endurhæfingu framundan en hún er enn í hjólastól. Hún segist vona að bráðlega geti hún farið að ganga á hækjum, en það muni taka hátt í heilt ár þar til beinin gróa að fullu. „Þetta hafa verið alvarlegustu, erfiðustu og sársaukafyllstu meiðsli sem ég hef lent í, sinnum hundrað“ sagði Vonn á Instagram. Í færslunni lýsir hún nánar meiðslunum og aðgerðunum sem hún gekkst undir. Varað er við því að myndefnið sem þar fylgir er ekki fyrir viðkvæma. View this post on Instagram
Mest lesið Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti KR sækir sænskan landsliðsmann Körfubolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Fleiri fréttir Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ „Sigurinn nærir“ „Margt jákvætt í leik okkar að þessu sinni“ Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Héldu út manni færri þar til átta mínútur voru eftir Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands Róbert Frosti fagnaði sigri en Brann kastaði frá sér góðri forystu Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Ítalía nær ekki að krækja í Guardiola Modric tekur slaginn áfram í Mílanó Leikvangur með gagnsætt þak og yfir tuttugu þúsund bílastæði Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík „Klopp er tvímælalaust rétti maðurinn“ Arnór í leyfi frá störfum Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Keyrir gamla bíla til að viðhalda ást sinni á Formúlu 1 Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Segir að ítalski fótboltinn þurfi að horfa til Spánar Fyrrum UFC-meistari vinnur fyrir sér sem sendill Barcelona kaupir Adeyemi Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Sjá meira
Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands