Fótbolti

Aftur ráðast HM-örlög Ís­lands gegn Portúgölum

Sindri Sverrisson skrifar
Portúgalar fagna marki gegn Norður-Írum í Portimao í kvöld.
Portúgalar fagna marki gegn Norður-Írum í Portimao í kvöld. Getty/Torbjorn Tande

Portúgal var ekki frekar en Ísland í neinum vandræðum með að komast áfram í lokaumferð umspilsins um sæti á HM kvenna í fótbolta í Brasilíu. Liðin mætast í tveggja leikja einvígi og þar eiga Íslendingar svo sannarlega harma að hefna.

Fyrri leikur Íslands og Portúgals verður í Portúgal undir lok nóvember og sá seinni á Laugardalsvelli, væntanlega 5. desember.

Sigurliðið kemst á HM í Brasilíu næsta sumar en þessi lið mættust einmitt einnig í umspilinu fyrir síðasta HM. Þá var aðeins um eins leiks einvígi að ræða og dregið um hvort liðanna yrði á heimavelli. Portúgal hafði þar heppnina með sér og vann svo leikinn á endanum 4-1 eftir framlengingu og afar umdeilt rautt spjald á Áslaugu Mundu Gunnlaugsdóttur í venjulegum leiktíma.

Portúgal mætti Norður-Írlandi í fyrri umferð HM-umspilsins í ár og vann seinni leik liðanna 3-1 á heimavelli í kvöld. Portúgal hafði unnið útileikinn 4-0 og þó að Kess Elmor hafi komið Norður-Írum yfir í fyrri hálfleik í kvöld var sigur Portúgals í einvíginu álíka öruggur og hjá Íslandi gegn Króatíu, eða samtals 7-1.

Carolina Santiago jafnaði metin gegn Norður-Írum í lok fyrri hálfleiks í kvöld og í þeim seinni skoruðu Jéssica Silva og Carolina Santiago og innsigluðu sigur Portúgals.


Tengdar fréttir

Ís­land - Króatía 5-0 | Ís­lensk ein­stefna á Laugar­dals­velli

Ísland er komið áfram í úrslitaeinvígi um sæti á HM í Brasilíu á næsta ári eftir samanlagðan 9-0 sigur í einvígi gegn Króatíu. Ísland vann 5-0 sigur á Laugardalsvelli í kvöld og mætir að öllum líkindum Portúgal í úrslitum þar sem sæti á HM verður undir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×