Fyrirliði Freys segir Brann fá innblástur frá Bodö/Glimt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. febrúar 2026 18:01 Freyr Alexandersson, þjálfari Brann, fagnar hér eftir leik liðsins í Evrópudeildinni fyrr í vetur. Getty/Jurij Kodrun Norska ævintýrið í Meistaradeildinni hefur gefið Íslendingaliðinu Brann trú að þeir geti líka búið til sitt eigið Evrópuævintýri í Evrópudeildinni annað kvöld.
Á morgun er komið að seinni umspilsleiknum í Evrópudeildinni milli Brann og Bologna. Ítalska liðið vann Brann 1–0 í Bergen í síðustu viku og er nú gestgjafi í leiknum á fimmtudaginn. Fyrirliðinn Fredrik Pallesen Knudsen segir að þetta verði mikilvægur leikur en líka mjög skemmtilegur fótboltaleikur. Við hlökkum gríðarlega mikið til „Við þurfum mörk og helst þurfum við að forðast að fá á okkur mark. Við hlökkum gríðarlega mikið til þeirrar áskorunar sem við stöndum frammi fyrir,“ sagði fyrir Freyr Alexandersson sem þjálfar lið Brann. Fyrirliðinn fylgdist með leik Bodö/Glimt og Inter í gær, þar sem Norðlendingarnir komust áfram í Meistaradeildinni með 5–2 samanlagt. „Þetta var frábær frammistaða, það sáum við öll. Að norsk knattspyrna geti staðið sig svona vel á þeim mælikvarða sem við erum á núna gefur öllum sem spila í þessari deild sjálfstraust,“ sagði Kundsen. Eru sjálfir mjög uppteknir af því Hann leggur áherslu á að metnaður þeirra sé að komast áfram. Freyr Alexandersson var einnig hrifinn af Glimt. „Glimt skilaði stórkostlegri frammistöðu, sem þeir eru sjálfir mjög uppteknir af. Þeir eiga að fá alla heimsathygli á sig og eiga að njóta þess, líka vegna þess að þeir eiga það skilið,“ sagði Freyr. Freyr um Meistaradeildardrauma Brann En þjálfarinn leggur líka áherslu á að ekki eigi að bera þessi tvö félög saman. „Við verðum að sýna Brann smá þolinmæði, því velgengni Glimt er ferðalag í rétta átt yfir langan tíma, bæði með ákvörðunum, samfellu og hæfu fólki í stöðum. Það eru fjögur ár síðan Brann var í B-deildinni, gefið okkur sex ár í viðbót og þá getum við séð hvort við komumst líka í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar,“ sagði Freyr.
Evrópudeild UEFA Norski boltinn Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Sjá meira