Íris kveður stjórnmálin í Eyjum Jakob Bjarnar skrifar 27. febrúar 2026 11:06 Íris Róbertsdóttir mun ekki bjóða sig fram fyrir hönd H-listans í komandi sveitarstjórarkosningum. H-listinn fundar nú um framhaldið. vísir/vilhelm/Saga Sigurðardóttir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún segist hafa tilkynnt stjórn Heimaeyjar þessa ákvörðun sína. Mikil spenna er um efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í bænum og Miðflokkurinn er mættur til eyjunnar grænu og fögru.
Íris ritar hjartnæman kveðjupistil á Facebook-síðu sína þar sem hún greinir frá þessu. Hún segir að síðustu átta ár hafi þroskað sig mikið, þau hafi reynt á en einnig veitt sér styrk og gleði. Íris segist ánægð með þann árangur sem náðst hefur, ekki síst í hagsmunagæslu gagnvart ríkinu. „Að vel athuguðu máli hef ég ákveðið að gefa ekki kost á mér á framboðslista hjá bæjarmálafélaginu Fyrir Heimey í komandi kosningum og hef ég tilkynnt stjórn félagsins þá niðurstöðu,“ segir Íris þakklát og auðmjúk. Og hún vísar í nýlega Gallup-könnun sem sýnir mikla ánægju Eyjamanna með störf hennar. Íris birti nýverið nýja mynd af sér á Facebook sem vakti nokkra athygli. Menn veltu því þá fyrir sér hvort um væri að ræða framboðsmynd: „Að geta lokað þessum kafla með Fyrir Heimaey með þetta veganesti gerir mig glaða og stolta. Takk fyrir traustið, öll samtölin og hvatninguna til áframhaldandi góðra verka; ég met það mikils. Í vor hefst nýr kafli,“ segir Íris. Páll og Jóna segja einnig komið gott Skömmu eftir tilkynningu Írisar fylgdi Páll Magnússon, 2. maður á H-lista, í kjölfarið og greindi Vísi frá ákvörðun sinni um að hann myndi ekki gefa kost á sér til áframhaldandi setu. Hann segist ganga sáttur og stoltur frá borði. „… með þann árangur sem náðst hefur í rekstri og stjórn bæjarins þau fjögur ár sem ég hef setið í bæjarstjórn – og raunar öll átta árin sem bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey hefur verið í forystu hér í bænum. Páll Magnússon hættir í stjórnmálum eftir þetta kjörtímabil.vísir/Ívar Ég er þakklátur fyrir þann stuðning sem bæjarbúar hafa sýnt H-listanum – og félögum mínum í bæjarstjórn fyrir að treysta mér til að vera forseti bæjarstjórnar á meðan ég hef setið þar.“ Páll segir þrjá mánuði eftir af kjörtímabilinu og hann þakkar fyrir sig. Það sama gerir Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, þriðji H-listamaðurinn. H-listinn fundar nú en að öllu óbreyttu lítur út fyrir að hann sé að hverfa af velli. Klofningurinn í Sjálfstæðisflokknum óútkljáður Víst er að komandi sveitarstjórnarkosningar verða spennandi í Vestmannaeyjum. Klofningur varð í Sjálfstæðisflokknum þar í bæ fyrir átta árum og varð þá til H-listinn fyrir Heimaey. Þau eru í meirihluta í bæjarstjórn, með þrjá fulltrúa kjörna ásamt tveimur fulltrúum E-lista. Listi Sjálfstæðisflokksins, sem ráðið hafði lögum og lofum í bænum, hefur verið í minnihluta með fjóra fulltrúa kjörna. Klukkan 18 í dag lokar Sjálfstæðisflokkurinn fyrir framboð í prófkjöri flokksins fyrir komandi kosningar. Fyrir liggur að þar munu takast á um efsta sætið Eyþór Harðarson, sem er nú efsti maður á lista Sjálfstæðismanna, og svo Trausti Hjaltason. Eyþór hefur talað fyrir sameiningu Sjálfstæðismanna við H-listann en Trausti er talinn í vinfengi við Elliða Vignisson, bæjarstjóra í Ölfusi sem um árabil var bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, sem mun ekki enn hættur að skipta sér af bæjarmálapólitíkinni í Eyjum. Það sem svo enn verður til að flækja málin er að Miðflokkurinn mun ætla að bjóða fram í sveitarfélaginu, þannig að nóg verður um að tala þegar bæjarmálapólitíkin í Eyjum er annars vegar.
Vestmannaeyjar Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira