Skaðabótalög – breytingar til hagsbóta fyrir neytendur? Tinna Björk Gunnarsdóttir skrifar 27. febrúar 2026 17:02 Undanfarið hafa Neytendasamtökin kynnt nýja skýrslu, sem er úttekt þeirra á íslenska vátryggingamarkaðnum. Í síðustu viku tók ég þátt í pallborðsumræðum í ráðstefnu samtakanna um skýrsluna. Í skýrslu Neytendasamtakanna er m.a. fjallað um vátryggingar í víðum skilningi, bæði út frá bótakerfinu almennt og skaðabótarétti. Farið er yfir sögu kerfisins, samsetningu þess og „leitað svara við því hvort nýta megi fjármuni í kerfinu betur“. Samtökin hafa í tilefni af skýrslunni lagt fram sjö tillögur til úrbóta og m.v. fjölmiðlaumfjöllun hyggjast þau þrýsta á breytingar við stjórnvöld og starfandi þingflokka. Tillögurnar tengjast m.a. samræmingu örorkumata, dreifingu örorkugreiðsla, lágmarksþröskuldi bóta vegna varanlegrar örorku og samræmingu tímafresta svo dæmi séu nefnd. Það er vissulega jákvætt og tímabært að fjalla um þessi mál og skoða hvað má betur fara. Tillaga Neytendasamtakanna um samræmingu tímafresta (sem tjónþolar þurfa að virða svo réttur til bóta glatist ekki) væri t.d. til mikilla bóta. Eins og staðan er núna eru frestirnir margir og mismunandi eftir tegundum mála. Það er óþarflega flókið fyrir þau sem þurfa á kerfinu að halda að átta sig á þeim og halda utan um. Einföldun á þessu kæmi neytendum til góða. Það sem vakti mesta athygli mína er að aðaláherslan í tillögum Neytendasamtakanna er að minnka kostnað við kerfið, í þeirri von að iðgjöld trygginga lækki, en oft á kostnað þeirra sem hafa slasast og þurfa á kerfinu að halda. T.d. er ein tillaga samtakanna sú að skoða að setja á „lágmarksþröskuld“ vegna varanlegrar örorku. Í tillögunni felst að ekki verði greiddar örorkubætur í skaðabótamálum nema örorka nái ákveðnu lágmarki, t.d. 15%. Umræða um þröskuld af þessu tagi er alls ekki ný af nálinni. Sambærileg tillaga fékk töluverða umfjöllun af hálfu lögfræðinga og lögmanna 2020-2021. Hafa verið færð fyrir því sannfærandi rök að breytingatillaga í þessa veru stangist á við jafnræðisreglu 65. gr. og eignaréttarákvæði 72. gr. stjórnarskrárinnar.[1] Möguleikar einstaklinga til að afla sér tekna falla undir vernd eignaréttarákvæðisins. Fyrir skerðingu eignaréttar þarf að uppfylla ströng skilyrði um almenningsþörf, meðalhóf og jafnræði. Hæstiréttur hefur áður komist að þeirri niðurstöðu að skerðing/aðgreining sem þessi, brjóti gegn jafnræðisreglunni. Að samtök neytenda leggi upp með þessa tillögu er athyglisvert, þar sem þau sem slasast eru einnig neytendur í þessu kerfi. Þá virðist ekki hafa verið unnin kostnaðargreining á tillögunum, svo það er óljóst hvort þær leiði yfirhöfuð til sparnaðar í kerfinu sem væri til hagsbóta fyrir neytendur. Það sem ég sakna þó mest í umfjöllun um þessi mál er að það liggur fyrir að það eru rangar forsendur í núgildandi skaðabótalögum. Flestir, ef ekki allir, sem til þekkja eru sammála um það. Bæði er margfeldisstuðull 6. gr. laganna ekki réttur m.v. aðstæður í dag og þá eru bæði lágmarkslauna- og hámarkslaunaviðmið laganna tengd við ranga vísitölu. Launaviðmiðin hafa vegna þess ekki fylgt launaþróun í landinu. Þessi tvö atriði leiða til verulegrar skekkju í bótaútreikningum og valda því að yfirlýstu markmiði skaðabótalaga, um að tryggja slösuðum fullar bætur vegna líkamstjóns, er ekki náð. Þetta bitnar sérstaklega illa á ungu fólki sem slasast. Ágreiningur um það, hvort leggja eigi til grundvallar lágmarkslaunaviðmiðið eða annað tekjuviðmið, er mjög algengur í skaðabótamálum vegna líkamstjóns sem rekin eru fyrir íslenskum dómstólum. Í nóvember 2023 komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að þessi skakka þróun lágmarkslaunaviðmiðsins leiddi til þess að gerðar væru minni kröfur en áður til tjónþola, til sönnunar á því að beita ætti öðru viðmiði. Í stuttu máli liggur fyrir að við erum með lagaákvæði sem byggir á röngum forsendum og leiðir þ.a.l. til fjölda dómsmála með tilheyrandi kostnaði fyrir tryggingafélögin og samfélagið (t.d. vegna gjafsóknarmála). Tillögur Neytendasamtakanna taka ekki með neinu móti tillit til þessa. Á árinu 2018 lagði þáverandi ríkisstjórn fram frumvarp til breytinga á skaðabótalögum sem átti m.a. að leiðrétta þessi röngu atriði. Í frumvarpinu eru því gerð skil að þegar lágmarkslaunaviðmiðið hafi verið ákveðið, hafi verið höfð hliðsjón af meðallaunum landverkafólks innan ASÍ. Miðað var við að lágmarkslaunin ættu að vera ca. 85% af þeim meðallaunum. Þar sem viðmiðið var tengt við lánskjaravísitölu, en ekki launavísitölu, var staðan orðin þannig 2015 að lágmarkslaunaviðmiðið var 54% af umræddum meðaltekjum. (Staðan hefur nú skekkst enn frekar, meðallaun verkafólks voru 9.540.000 kr. samkvæmt Hagstofunni árið 2024 en lágmarkslaun skaðabótalaga 4.528.702 kr. m.v. júlí 2024. Lágmarkslaunaviðmiðið er því nú um 47% af meðaltekjum verkafólks). Frumvarpið varð ekki að lögum. Þingmenn Flokks fólksins hafa einnig ítrekað lagt fram frumvarp til leiðréttingar á vísitölutengingunni, síðast í september 2024. Frumvarp Flokks fólksins hefur heldur ekki orðið að lögum. Við búum því enn við lagaákvæði sem eru ósanngjörn í garð þeirra sem slasast. Höfundur er lögmaður á Fortis lögmannsstofu. [1] Sjá t.d. grein Valgerðar Sólnes, „Hvaða áhrif hefði lögfesting reglu um skilyrði 15% varanlegrar örorku fyrir bótum?“ sem birtist í 2. tölublaði Tímarits lögfræðinga árið 2021. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lögmennska Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar